HÚSASJÁ

Dælengi 19

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
47 myndir

188 m²

Stærð

5

Herbergi

6

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1975

Byggingarár

750 m²

Lóð

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



24 dagar á sölu

sell

94.900.000 kr

504.787 kr/m²

LÓB fasteignir kynna í einkasölu fasteignina Dælengi 19. Eignin er vel skipulögð, 6-7 herbergja, fjölskylduvænt einbýlishús á góðum stað á Selfossi. Húsið er byggt árið 1975 og er timburhús klætt með áli. Eignin er með birta stærð 188 m2,  sem skiptist í einbýlishús stærð 142,2 m2 og bílskúr stærð 45,8m2.  Að innan skiptist eignin í anddyri, stofu, sjónvarpshol, eldhús, baðherbergi, gestasalerni, 6* svefnherbergi (þar af eitt í bílskúr), þvottahús og bílskúr. Eignin er staðsett innst í Dælenginu á móts við Dælengisróló. Eignin stendur í mjög grónu hverfi á Selfossi og stutt í alla þjónustu.

Nánari lýsing.

Anddyri er með vínilparketi á gólfi og þar er góður fataskápur. Fostofuherbergi er parketlagt. Gestasalerni er með vínilparket á gólfi, salerni og handlaug. Stofa, sjónvarpshol og gangur er með parketi á gólfi. Stofan er rúmgóð og björt. Úr sjónvarpsholi er útgengt á skjólsaman sólpall. Eldhús er með góðri innréttingu með góðu skápaplássi. Vínilparket eru á gólfi og eldhúskrók. Inn af eldhúsi er gengið í þvottahús sem er flísalagt. Í þvottahúsi er nýleg innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og með góðu skápaplássi og búrskáp. Frá þvottahúsi er svo útgengt að bílastæðum og bílskúr. Svefnherbergin eru 6 talsins þar af eitt í bílskúr. Hjónaherbergi er með góðum fataskáp og útgengt á pall. Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, hornbaðkari, gólfsturtu og innréttingu. Bílskúrinn er með innkeyrsluhurð, búið er að stúka af gott herbergi innst í bílskúrnum, flotað gólf og gólfhiti í bílskúr. Einnig er útgengt úr herberginu í bakgarð.

Garðurinn er þökulagður og gróinn, fyrir framan hús er nýlegur pallur með skjólvegg. Að aftan er eldri sólpallur með heitum pott og skjólveggjum.

Mjög stutt í leikvöll, stutt í alla grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og miðbæinn.

Í heildina vel skipulögð og góð eign sem vert er að skoða.

Bókið skoðun hjá Kristófer, kristo@olafur.is eða síma 695-6134

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LÓB fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209

Kort af Dælengi 19

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47