HÚSASJÁ

Álftarimi 9

01-0304 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

87 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1990

Byggingarár

2414 m²

Lóð

Garður

Geymsla



43 dagar á sölu

sell

48.700.000 kr

557.847 kr/m²

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Vel skipulögð og talsvert endurnýjuð þriggja herbergja íbúð merkt 304 við Álftarimi 9 á Selfossi.

Eignin er skráð 87,3 fm, þar af geymsla í kjallara 8,9fm.

Húsið er byggt árið 1990 og er steypt og klætt að utan með steni.

Íbúðin hefur verið talsvert endurnýjuð nýlega, nýleg innrétting er í eldhúsi, fataskápar í herbergjum nýjir, gólfefni ný og allt nýtt á baðherbergi.

Nánari lýsing:

Að innan skiptist íbúðin í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í kjallara.

Rúmgóður fataskápur er í forstofu, þar eru parketflísar á gólfi.

Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og eru fataskápar í þeim báðum og parket er á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og hluti veggja, þar er innrétting með handlaug, klósett og baðkar með sturtu. Hiti er í gólfi.

Eldhús er inn af stofu, þar er ný smekkleg innrétting og er parket á gólfi.

Stofan er rúmgóð, parket er á gólfi og úr stofu er útgengt á svalir.

Geymsla er í sameign, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Góð staðsetning stutt frá skóla og verslun.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.

arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.

Kort af Álftarimi 9

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð