HÚSASJÁ

Álftarimi 1

01-0304 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

129 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1982

Byggingarár

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



203 dagar á sölu

sell

59.500.000 kr

463.035 kr/m²

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir : Einkar falleg og björt enda íbúð, 128,5 fm 4ja herbergja íbúð á 3 hæð með tvennum svölum og bílskúr við Álftarima 1 á Selfossi.  -

Eignin er skráð 128,5 og þar af er bílskúr 22,3 fm.

Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og alrými með eldhúsi og stofu, geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Húsið var tekið í gegn að utan fyrir nokkrum árum og er í ágætu ástandi.

Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D

Það sem er nýbúið að gera að innan og utan.

Gólf flotað, handsparslað og lakkað.

Öll íbúðin heilmáluð, veggir og loft.

Nýjar hurðar á öllum herbergjum.

Eldhúsinnrétting máluð.

Nýir tenglar og rofar.

Nýr fataskápur í svefnherbergi

Veggur fjarlægður einu svefnherbergi breytt í sjónvarpshol ekkert mál að breyta til baka.

Ný blöndunartæki á baði.

Nýir gluggar og opnalegfög við stóru svalirnar.

Gólfplata á báðum svölum flotaðar.

Múrað í stóru svalirnar og þær lagaðar og málaðar.

// Bílskúr.

// Tvennar svalir til suðurs og vesturs.

// Búið að gera mikið fyrir íbúðina.

// Stór sameiginlegur garður.

// vel staðsett eign.

// Stutt í alla þjónustu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Er rúmgóð með fataslá hægt að setja upp fataskáp.

Stofa/borðstofa: Er í opnu rými við eldhús, úr stofu er gengið út á stórar suðursvalir.

Hjónaherbergi: Er mjög rúmgott og er með fataskáp og með útgengi út á vestursvalir.

Barnaherbergin: Eru tvö, bæði rúmgóð, búið að breyta öðru í sjónvarpsherbergi, mjög auðvelt að breyta til baka.

Baðherbergi/þvottaherbergi:  Er rúmgott með innréttingu, baðkar með sturtu og tengi fyrir þvottavél . Flísar á gólfi og veggjum að hluta.

Eldhús: Er með fallegri dökkri innréttingu beggja megin með miklu skápaplássi.

Geymsla: Er 4,6 fm  og er staðsett í sameign.

Hjóla og vagnageymsla: Er niðri og er mjög snyrtileg.

Bílskúr: Mjög rúmgóður, er með hita, kalt vatn, rafmagn og fjarstýringu til að opna. .

Frábær staðsetning miðsvæðis á Selfossi, Stutt í grunnskóla, leikskóla, FSu, verslanir, íþróttavöllinn og sundlaugina.  Auk miðbæjarins með öllu sínu mannlífi og veitingastöðum.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Álftarimi 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu