HÚSASJÁ

Heimagata 28

01-0201 · 900 Vestmannaeyjum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
53 myndir

116 m²

Stærð

3

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1925

Byggingarár

Garður

Geymsla



158 dagar á sölu

sell

59.800.000 kr

335.202 kr/m²

Heimagata 28, tveggja íbúða hús

Ibúðarhús á þremur hæðum sem er skv. fasteignaskrá tvær íbúðir/tvö fastanúmer en var upphaflega byggt sem einbýlishús.  Íbúð á jarðhæð, 218-3836, er skráð 62,3 fm og hæð og ris, 218-3837, er skráð 116,1 fm en gólfflötur er meiri í risi sem er ekki skráður, samtals um 180 fm skráðir en um 200 fm gólfflötur.  Húsið er upphaflega byggt árið 1925 og stækkað árið 1955.  Húsið er steypt. Eignin skiptist svo:

Jarðhæð (íbúð skv. fasteignaskrá 62,3 fm):

Inngangur að austanverðu, anddyri með flísum á gólfi

Baðherbergi í endurnýjun, tilbúið undir tréverk, búið að endurnýja lagnir

Herbergi (1) með dúk á gólfi, búið að stúka af lagnarými við herbergið, þar eru tveir hitakútar en heitt vatn er aðskilið milli hæða, rafmagn einnig aðskilið.

Herbergi (2) með parketi á gólfi

Stofa með parketi, nýtt plastparket fylgir

Eldhús með parketi og eldri innréttingu og tækjum

Hæð (skv. fasteignaskrá 70,2 fm)

Sér inngangur að vestanverðu, timburpallur

Anddyri án gólfefna

Hol með parketi, uppgangur í risið

Stofa/borðstofa með upprunalegum timburfjölum á gólfi, búið að pússa fjalir upp

Eldhús með eldri innréttingu og borðstofuskáp, búið að pússa fjalir upp.

Ris (skv. fasteignaskrá 45,9 fm en gólfflötur er meiri c.a. 60 fm)

Pallur með parketi við hann er geymsla og tengi fyrir þvottavél

Baðherbergi með sturtu, vaski og lítilli innréttingu, mögulegt að stækka/opna inní þvottarými

Herbergi (1/3) með parketi

Herbergi (2/4) með parketi, nýlega einangrað og klætt en ómálað

Herbergi (3/5) með parketi, geymsla inn af þessu herbergi

Eignin er í ágætu ástandi að utan, alocink á þaki/kvistum endurnýjað  c.a. árið 2020, gluggar að sjá ágætir en gler þarfnast sum skoðunar en kominn tími á að mála eignina að utan.

Eignin stendur skammt frá miðbæ Vestmannaeyja og góð skjólsæl/björt baklóð fylgir eigninni og er lóðarstærð 287,5 fm.  Ljósleiðari er kominn í húsið.

Eignin er skráð sem ein eign en er tvö fastanúmer og mögulegt að kaupa í tvennu lagi.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lgf, hb@eyjar.is og gsm 8931068.

Kort af Heimagata 28

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð