Heiðarvegur 60
01-0001 · 900 Vestmannaeyjum



2 dagar á sölu
49.400.000 kr
517.820 kr/m²
Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Heiðarveg 60 sem er björt og falleg neðri hæð í tvíbýli miðsvæðis í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt úr steini árið 1961 og er eignin skráð 95,4 m2.
Fyrir nokkrum árum var eignin einangruð og klædd með kvarts, ásamt því voru gluggar endurnýjaðir. Samkvæmt seljanda er búið að drena.
Frábær fyrsta eign eða fyrir þá sem eru að minnka við sig, viðhaldslétt eign á frábærum stað.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi
Stofa: Parket á gólfi
Eldhús: Flísar á gólfi, snyrtileg viðar innrétting, flísar á vegg á milli skápa
Baðherbergi: Flísar á gólfi og votrýmum, walk in sturta, vaskur, upphengt wc, baðinnrétting, opnanlegur gluggi.
Herbergi 1: parketi á gólfi
Herbergi 2: parket á gólfi
Útigeymsla: Steypt gólf
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






