HÚSASJÁ

Heiðarvegur 5

01-0101 · 900 Vestmannaeyjum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

464 m²

Stærð

7

Svefnherbergi

4

Baðherbergi

1956

Byggingarár

Sérinngangur

Geymsla



640 dagar á sölu

sell

138.000.000 kr

297.735 kr/m²

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Heiðarveg 5 í Vestmannaeyjum, á 1. hæð er atvinnushúsnæði með góðum sal og eldhúsi ( þar er starfræktur veitingastaðurinn pizza 67). Búið er að innrétta íbúðir á 2. og 3. hæð.  Húsið er byggt úr steini árið 1956 og er skráð 463,5 m2. Búið er að setja upp stórt útitjald.  Stór steyptur pallur er útfrá íbúð á 2. hæð sem gefur mikla möguleika.  Frábært fjárfestingatækifæri, möguleiki á að kaupa eignina eða eignina og reksturinn. Eign á besta stað í miðbæ Vestmannaeyja með mikla möguleika.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Nánari lýsing:

1. hæð: Fullbúin veitingasalur með sæti fyrir 50 manns, ásamt bar, mjög rúmgóðu eldhúsi, geymslu og stórum kæli. Búið er að stækka eldhús og starfsmannaaðstöðu.

2. hæð: 70 m2 íbúð, parket á gólfi, nýleg hvít Ikea innrétting, baðherbergi með epoxy á gólfi, sturtu, wc og innréttingu.  Að auki er 27 m2 herbergi á hæðinni með sér baðherbergi. Útgengt á stórar svalir með mikla möguleika.

3. hæð: 55 m2 íbúð, parket á gólfi, eldhús með snyrtilegri innréttingu, 2 parketlögð svefnherbergi, baðherbergi með flísum á gólfi og sturtu.

Kjallari: Undir nánast öllu húsinu er geymsla, ekki full lofthæð

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Heiðarvegur 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu