Brekastígur 7C
01-0101 · 900 Vestmannaeyjum



633 dagar á sölu
89.900.000 kr
253.955 kr/m²
Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Einbýlishúsið Brekastíg 7c í Vestmannaeyjum sem er 6 herbergja eign á 2 hæðum á frábærum skjólsælum stað í bænum. Eignin er byggð úr steini/ timbri árið 1940 en var stækkuð um 190 m2 á árunum 2012-2014. Stærð er samtals 354 m2, þar af er bílskúr 42,2 m2. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár, má þar nefna 2 baðherbergi, gólfefni að hluta, þvottahús, gólfhiti er í nýbygginu. Rúmgóð eign á frábærum stað með mikla möguleika.
Stutt í miðbæinn og Barnaskólann.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105
Nánari lýsing:
Fyrsta hæð:
Andyri: Flísar á gólfi, fatahengi
Eldhús: Flísar á gólfi, falleg stór hvít innrétting, 3 ofnar, stór eyja, flísar á milli skápa
Stofa: Parket á gólfi
Svefnherbergi 1: Flísar á gólfi
Baðherbergi 1: Flísar í hólf og gólf, upphengt wc, innrétting, opnanlegur gluggi, allt nýuppgert.
Baðherbergi 2: Flísar í hólf og gólf, baðkar, wc, innrétting
Þvottahús: Flísar á gólfi, góð innrétting, útgengt á pall til suðurs.
Geymsla: Steypt gólf, hillur
Pallur: timburpallur
Bílskúr: Steypt gólf, nett snyrting
Önnur hæð:
Herbergi 2: Parket á gólfi, skápur
Herbergi 3: parket á gólfi, skápur
Herbergi 4: parket á gólfi, skápur
Herbergi 5: Parket á gólfi
Stofa: Parket á gólfi
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, verið er að klára það, allt nýuppgert
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
























