HÚSASJÁ

Bárustígur 1B

01-0102 · 900 Vestmannaeyjum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
7 myndir

111 m²

Stærð

3

Baðherbergi

1930

Byggingarár

280 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla



521 dagar á sölu

sell

36.900.000 kr

331.835 kr/m²

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu:  Bárustíg 1 B sem er verslunarhúsnæði á frábærum stað miðsvæðis í Vestmannaeyjum. Eignin er byggð úr steypu árið 1930 og er 111,2 m2.  Eignin býður upp á fjölbreytta möguleika á atvinnurekstri hvort heldur sem um ræðir veitingastað, kaffihús, verslun, skrifstofuhúsnæði eða annað.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Nánari lýsing:

Um er að ræða verslunarrými á frábærum stað miðsvæðis í Vestmannaeyjum  Eignin samanstendur af rúmgóðum sal, eldhúsi, þrem salernum og geymslu.  Gólf flotað og lakkað.  Skipt hefur verið um 2 glugga í eigninni.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Bárustígur 1B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu