Ásavegur 7
01-0101 · 900 Vestmannaeyjum



308 dagar á sölu
35.000.000 kr
465.426 kr/m²
Ásavegur 7, íbúð á jarðhæð, Vestmannaeyjum
Hin selda eign er íbúð á jarðhæð auk hlutdeildar í geymslu/þvottarhúsi á jarðhæð/kjallara sem er í sameign tveggja íbúða í húsin. Húsið er steypt og byggt árið 1958. Heildarfermetrafjöldi hinnar seldu eignar er 75,2 fm auk sameignar. fm. Eignin skiptist svo:
Ásavegur 7, Vestmannaeyjum
Inngangur frá jarðhæð að vestanverðu
Anddyri/gangur með parketi
Herbergi (1), parket á gólfi, skápar
Baðherbergi flísar í hólf og gólf, sturtuklefi, innréttingar, handklæðaofn
Eldhús með parketi, opið inní stofu
Stofa/sjónvarpshol með parketi á gólfi
Herbergi (2) með parketi , laus skápur
Þvottarhús/geymsla í sameign tveggja íbúða á jarðhæð, steypt gólf, útgangur út á baklóð, í þessu rými er hitagrind/varmaskiptir sem er sameiginlegur með íbúðum en unnið er að því að skipta því upp og svo inntök fyrir ljósleiðara.
Góð frágengin lóð. Malbikuð bílastæði að suðvestanverðu sem eru í sameign íbúða á 2. hæð og jarðhæð.
Eignin er að sjá í ágætu ástandi að utan, gluggar og þak að sjá gott en þörf á málun að hluta.
Ný eignaskiptayfirlýsing fyrir allt húsið.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali, hb@eyjar.is, gsm 8931068

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna









