HÚSASJÁ

Mánabraut 3

01-0101 · 780 Höfn í Hornafirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

215 m²

Stærð

4

Herbergi

1983

Byggingarár

500 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



323 dagar á sölu

sell

98.500.000 kr

458.566 kr/m²

Kjöreign fasteignasala kynnir: Vel staðsett einbýlishús við Mánabraut 3, Hornafirði. Birst stærð er 214,8 fm. Húsið stendur við Silfurnesgolfvöllinn í lokaðri götu. Á árunum 2007-2008 var húsið meira og minna endurnýjað að innanverðu og málað að utanverðu 2013. Lýsing, neðri hæðin. Fostofa er með náttúruflísum á gólfi við innganginn og parketi á gólfi innar í rýminu. Skápur og fatahengi eru í forstofunni. Gengið er inn á gestasalerni og í þvottahús úr forstofunni. Á gestasalerni eru náttúruflísar á gólfi, mósaikflísar á veggjum og sturta. Þvottahús er rúmgott með lítilli geymslu inn af þvottahúsinu. Eldhúsið eldhúsið var endurnýjað árið 2007 en ný eldavél og háfur voru sett 2024. Parket er á gólfi. Hvít Kvik innrétting og eyja með gegnheilli eik á borðfleti. Ekki er til staðar uppþvottavél. Í stofu er parket á gólfi, gluggar eru til suðurs og vesturs og útgengt á fallegan pall í garðinum. Eitt svefnherbergi er á neðri hæðinni inn af stofunni og er parket á gólfinu þar. Parketlagður stigi liggur upp á efri hæðina. Lýsing efri hæðin. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi. Parket er á öllum gólfum nema á baðherbergi sem er flísalagt. Herbergi á efri hæðinni eru að hluta til undir súð svo gólfflötur er stærri en fram kemur í skráðum fermetrum. Hjónaherbergið er rúmgott og var sameinað áður úr tveimur herbergjum. Þar eru sérsmíðaðar innréttingar með miklu skápaplássi. Úr hjónaherbergi er útgengt  á svalir sem snúa til vesturs með óborganlegu útsýni yfir fjörðinn og jöklana. Á baðherberginu er gólfhiti, mósaikflísar á veggjum að hluta, baðkar og innréttingar frá 2008. Bílskúrinn er steyptur, með steyptu gólfi og rafmagnskyndingu, búið er að einangra loft en eftir að setja plötur yfir, vatn og rafmagn eru í skúrnum. Gott mannhæðarhátt geymslurými er á lofti bílskúrsins með góðu aðgengi. Garðurinn er einkar glæsilegur og skjólgóður. Pallar eru umhverfis húsið á suður- og vesturhlið og 8 manna rafmangspottur er á pallinum við bílskúrinn. Miklar endurbætur voru verið gerðar á húsinu á árunum 2007 og 2008 og þá voru lagnir og rafmagn einnig endurnýjað og yfirfarið að hluta (frárennslis- og neysluvatnslagnir í eldhúsi og á baðherbergi, en ekki í þvottahúsi). Stærðir; Neðri hæðin er skráð 105,8 fm., efri hæðin er skráð 71,5 fm. og bílskúrinn er skráður 37,5 fm. birt heildarstærð er 214,8 fm.

Einnig er hægt að fá eignina leigða - leiguverð kr. 400.000 auk rafmagns og hita.

Upplýsingar gefur Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignsali gsm. 896-4013 eða á dan@kjoreign.is

Kort af Mánabraut 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð