HÚSASJÁ

Hafnarbraut 3

01-0101 · 780 Höfn í Hornafirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

173 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1924

Byggingarár

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



130 dagar á sölu

sell

79.800.000 kr

460.208 kr/m²

EINBÝLISHÚS AÐ HAFNARBRAUT 3, HÖFN – MEÐ ÚTLEIGU- OG FERÐAÞJÓNUSTUMÖGULEIKUM

Valhöll fasteignasala, Suðurlandsbraut 27, sími 588-4477, og Snorri Snorrason, lgfs., sími 895-2115 – snorri@valholl.is kynna:

Reisulegt og fallega uppgert íbúðarhús miðsvæðis á Höfn með útleiguherbergjum á jarðhæð og fallegri 4–5 herbergja íbúð á mið- og rishæð.

Hafnarbraut 3 á Höfn í Hornafirði er þrílyft hús, 173,4 m² að stærð, ásamt 8,55 m² sólstofu.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Snorrason, lgf. – sími 895-2115 / snorri@valholl.is.

NÁNARI LÝSING

Jarðhæð

Anddyri og gangur: parket á gólfi.

Útleiguherbergi: þrjú herbergi, öll með parketi á gólfum.

Miðrými: parket á gólfi.

Baðherbergi: flísar á gólfi, hvít hreinlætistæki, sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Þvottahús: málað gólf að hluta, hillur, útgangur út á lóð.

Sérinngangur er frá framhlið hússins og bakdyr út á lóð.

Miðhæð

Gengið inn á miðhæð að utan af verönd á baklóð.

Anddyri og sólskáli: flísar á gólfi og gólfhiti. Sólskáli er rúmgóður og nýtist sem dagsstofa með góðu útsýni yfir höfnina.

Gangur: flísar á gólfi og fataskápur.

Hol og borðstofa: parket á gólfi, steyptur stigi úr holi upp á rishæð.

Stofa: parket á gólfi.

Eldhús: parket á gólfi, ljós innrétting, helluborð, ofn og vifta.

Rishæð

Gangur: parket á gólfi.

Hjónaherbergi: parket á gólfi.

Fataherbergi: inn af hjónaherbergi.

Barnaherbergi: parket á gólfi.

Geymsla/herbergi: parket á gólfi, lítill gluggi.

Baðherbergi: parketflísar á gólfi og gólfhiti, flísaplötur á veggjum, walk-in sturta, vegghengt WC, innrétting með vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

VIÐHALD OG ENDRBÆTUR

2025: Gólf á rishæð flotun og ný gólfefni.

2025: Baðherbergi stækkað, endurskipulagt og endurnýjað – nýjar innréttingar, tæki, gólfefni, veggir, loft og lagnir að hluta.

2024: Parket á miðhæð endurnýjað og lokað á milli miðhæðar og jarðhæðar.

2024: Ný verönd á baklóð; jarðvegur og bílastæði endurnýjuð.

Húsið er einangrað og klætt að utan með múr á jarðhæð og litað járn á mið- og rishæð.

NOTKUN OG MÖGULEIKAR

Gisting hefur verið rekin á ársgrundvelli í húsinu.

Húsið er staðsett á “miðsvæði” samkvæmt aðalskipulagi Hornafjarðar – svæði ætlað fyrir verslunar-, þjónustu- og stjórnsýslustarfsemi, sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.

UM SKOÐUNAR- OG AÐGÆSLUSKYLDU

Samkvæmt lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 hvílir rík skoðunarskylda á kaupendum fasteigna.

Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eignarinnar fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga ef þurfa þykir.Forsendur söluyfirlits eru í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna.

Upplýsingar eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum til húsfélags.

Seljandi ábyrgist að upplýsingarnar séu réttar í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fasteignasali sannreynir þær með sjónskoðun en getur ekki ábyrgst ástand hluta sem ekki sjást, s.s. lagnir, dren, skólp og þak. Sama á við um viðhald og framkvæmdir sem seljandi lýsir.

GJÖLD SEM KAUPANDI BER AÐ GREIÐA:

Stimpilgjald: 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup), 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal (kaupsamning, veðbréf o.fl.).

Lántökugjald: samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

Umsýsluþóknun: samkvæmt gjaldskrá fasteignasölunnar.

Skipulagsgjald: 0,3% af brunabótamati ef um nýbyggingu er að ræða.

Kort af Hafnarbraut 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41