HÚSASJÁ

Austurbraut 20

01-0101 · 780 Höfn í Hornafirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

163 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1985

Byggingarár

583 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



98 dagar á sölu

sell

64.500.000 kr

395.221 kr/m²

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  inni@inni.is

Falleg og vel skipulögð parhúsaíbúð með fjórum svefnherbergjum og bílskúr. Frábært útsýni.

Stofa og borðstofa eru í opnu rými með flísum á gólfi og útgengt á timburverönd með fallegu útsýni. Eldhús tengist stofu/borðstofu þó það sé aðeins meira sér. Í eldhúsi er falleg innrétting og sömu flísar á gólfi. Eldhús, stofa og borðstofa var endurnýjuð ca. árið 2007 og þar er hiti í gólfi. Hiti er einnig í gólfi í holi. Baðherbergi á neðri hæð var allt endurnýjað árið 2025, þar eru flísar á gólfi, fín innrétting og sturta. Flísar eru í forstofu en málað gólf í þvottahúsi þar inn af.

Á efri hæð er hol og úr því gengt í fjögur nokkuð rúmgóð svefnherbergi. Úr einu herbergi er útgengt á svalir. Spónarparket er á holi og öllum herbergjum. Baðherbergi á efri hæð er flísalagt. Þar er baðkar með sturtu í.

Bílskúr er nokkuð hefðbundinn, með geymslu innst og einnig geymslulofti.

Bílastæði er hellulagt og garður frágenginn með stórum timburveröndum, auk hellusvæðis sem nýtt hefur verið sem körfuboltaaðstaða.

Kort af Austurbraut 20

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð