HÚSASJÁ

Skólavegur 40

01-0101 · 750 Fáskrúðsfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

97 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1905

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Friðað

Geymsla



289 dagar á sölu

sell

36.900.000 kr

379.239 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu SKÓLAVEGUR 40 GESTSSTAÐIR, 750 Fáskrúðsfjörður.

Reisulegt endurnýjað einbýlishús. Útsýni er yfir fjörðinn frá hæðum hússins. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Einbýlishús; kjallari, hæð og ris, byggt árið 1905. Húsið skiptist í einbýli 89,8 m² og geymslu 7,5 m², samtals 97.3 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar; Hæð: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhús, baðherbergi. Ris: tvö herbergi og geymsla (lítið herbergi). Kjallari: geymsla. Útigeymsla.

Nánari lýsing;

Hæð:

Anddyri með dúk á gólfi, þaðan er gengið inn í stofu og borðstofu.

Stofa og borðstofa í opnu rými, harðparket á gólfi, þaðan er innangengt í eldhús, timburstigi liggur þaðan upp í ris.

Eldhús harðparket á gólfi, innrétting, nýlegt keramik helluborð, vifta, Elvita ofn, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, AEG ísskápur fylgir.

Baðherbergi, flísar á gólfi, fibo á veggjum (þremur) sturtuklefi, ikea vaskinnrétting, speglaskápur, handklæðaofn (rafmagns). Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi, gluggi.

Ris:

Stigaskör, við stigaskör er lítið herbergi, harðparket á gólfi. Tvö stærri herbergi, innangengt er á milli herbergja, plastparket á gólfi.

Kjallari:

Geymsla með steyptu gólfi, nýlegur hitakútur, vatnsinntök og rafmagnstafla. Sérinngangur í kjallara.

Húsið er þriggja hæða, kjallari, hæð og ris. Kjallari er steyptur, hæð og ris timbur og bárujárnsklædd, bárujárn á þaki.

Gróin lóð, steyptar tröppur liggja frá götu að húsinu. Útigeymsla er aftan við húsið.

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina, meðal annars:

Ný bárujárnsklæðning er á húsinu 2022-2023, nýir plastgluggar og gler, frá Gluggasmiðjunni á hæð og í risi ásamt nýrri útidyrahurð.

Útveggir hafa verið endurnýjaðir, spónplötu veggir, nýjar loftaplötur á hæð og í risi.

Ný rafmagnstafla, Berker rofar og tenglar. Nýtt dregið rafmagn í eldhús og baðherbergi að hluta, nýtt dregið í aðrar dósir.

Nýir rafmagnsofnar nema á þriðju hæðinni. Nýtt harðparket frá Byko er á hæð og risi.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 217-8082. Skólavegur 40.

Stærð: Kjallari 17.5 m². Hæð 51.5 m². Ris 20.8 m². Geymsla 7.5 m². Samtals 97.3 m².

Brunabótamat: 40.805.000 kr.

Fasteignamat: 24.450.000 kr.

Byggingarár: 1905

Byggingarefni: Steypt+timbur.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Skólavegur 40

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21