HÚSASJÁ

Hlíðargata 57

01-0104 · 750 Fáskrúðsfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

71 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1981

Byggingarár

1895 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



33 dagar á sölu

sell

32.400.000 kr

458.924 kr/m²

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir, löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:

Hlíðargata 57, Fáskrúðsfirði.

Hlýleg, björt og falleg 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi sem er 2 hæðir og kjallari. (hálf hæð upp frá götu).

Íbúðin er öll nýlega máluð.

2 bílastæði fylgja íbúðinni samkvæmt samkomulagi íbúa.

Rúmgóður stigapallur er framan við ibúðina.

Eldvarnarhurð í íbúðina er til en hefur ekki verið sett upp.

Íbúðinni tilheyrir rúmgóð geymsla í kjallara. Í geymslunni eru vandaðar stálhillur sem fylgja með. Einnig getur frystikista fylgt.

2 svefnherbergi eru í íbúðinni, misstór en bæði með skápum. Einnig er skápur í forstofu.

Milli herbergjanna 2ja er endi á breiðum gangi. Þetta pláss getur nýst sem vinnuaðstaða eða leiksvæði fyrir börn.

Eldhúsið er opið inn í stofuna. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með í kaupunum.

Baðherbergið er rúmgott. Það er baðkar og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara

Svalirnar eru ágætlega rúmgóðar.

Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi er í kjallara ásamt góðir geymslu fyrir vagna, reiðhjól og dekk

Gott útsýni er frá íbúðinni.

Heilsugæsla, skóli og leikskóli eru handan götunnar og stutt er í matvöruverslun.

Vel rekið húsfélag er í blokkinni og er góð samstaða um endurbætur. Sumrið 2025 var þak blokkarinnar endurnýjað. Framhlið og gaflar hússins hefur nýtlega verið málað. Svalagólf íbúðarinnar er nýlega endurnýjað og verða málaðar í sumar þegar suðurhlið hússins verður máluð.

Kort af Hlíðargata 57

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð