HÚSASJÁ

Ártröð 8

01-0101 · 700 Egilsstöðum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

139 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1978

Byggingarár

750 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



35 dagar á sölu

sell

73.900.000 kr

533.574 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ÁRTRÖÐ 8, Egilsstöðum.  Fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt stakstæðum bílskúr.

Staðsett í grónu hverfi á Egilsstöðum, leikskóli, grunnskóli og sundlaug í göngufæri, stutt í óspillta náttúru og gönguleiðir.

Stærstur hluti lóðar snýr til suðurs. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er timburhús, byggt árið 1978, 93.6 m² að stærð, ásamt steyptum bílskúr, byggður árið 1979, 44.9 m² að stærð, samtals 138.5 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar: Anddyri, skáli/gangur, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú herbergi, baðherbergi og þvottur/geymsla. Bílskúr.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing:

Anddyri, flísar á gólfi, fatahengi, rafmagnstafla.

Skáli/gangur er innan við anddyri, þaðan er opið inn í alrými, vinylparket á gólfi, fataskápur.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, vinylparket á gólfi. (Veggur hefur verið tekinn niður á milli eldhúss og stofu).

Eldhús, Brúnásinnrétting (2021), spanhelluborð, ofn og vifta, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél í vinnuhæð.

Herbergi I, hjónaherbergi, parket á gólfi.

Herbergi II, parket á gólfi, fataskápur.

Herbergi III, parket á gólfi.

Baðherbergi, vinylparket á gólfi, vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni og baðkar, gluggi,

Fiboplötur eru á vegg við og á baðkari (2017), upprunaleg innrétting.

Þvottahús/geymsla, flísar á gólfi, inntak vatns og hitaveitu.

Nýlegir rofar og tenglar í húsi, skipt var um innihurðir 2021.

Bilskúr er stakstæður, lagnir eru til staðar til að innrétta sem íbúð.

Gönguhurð er á hlið bílskúrs við inngang að íbúðarhúsi.

Skipulag bílskúrs, alrými/opið rými og tvö afstúkuð rými (herbergi). Dúkur á hluta gólfa, steypt gólf að hluta. Bílskúrshurð er flekahurð (án rafrænnar opnunar).

ÁRTRÖÐ 8 er timburhús á einni hæð klætt að utan með standandi bárujárnsklæðningu, timburgluggar og hurðar.

Bílskúr er steyptur, flatt þak (upprunalegt), timburgluggar og hurðar. Hellulögð stétt að inngangi hússins. Hiti er í stétt að hluta að inngangi hússins og í stétt á milli húss og bílskúrs.

Möl er í bílaplani framan við bílskúr. Lóð er gróin, þvottasnúra í garði.

Lóð er 750.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur er til 50 ára frá 11. október 1976, skjal nr. 426-F-00000192/UU.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 217-5474. Ártröð 8.

Stærð: Íbúð 93.6 m². Bílskúr 44.9 m². Samtals 138.5 m².

Brunabótamat: 65.300.000 kr.

Fasteignamat: 60.150.000 kr.

Byggingarár: Íbúð 1978. Bílskúr 1979.

Eignarhald: 01.2 Séreign. 01.0101 Íbúð 93.6 Brúttó m².

Eignarhald: 02.2 Séreign. 02.0101 Bílskúr 44.9 Brúttó m².

Landeignanúmer: 157632. Íbúðarhúsalóð 750,0 m².

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Ártröð 8

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð