HÚSASJÁ

Hlíðarendavegur 1A

01-0101 · 735 Eskifirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

177 m²

Stærð

5

Herbergi

6

Svefnherbergi

1948

Byggingarár

632 m²

Lóð

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



55 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

450.395 kr/m²

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali og Páll Birgir Jónsson, palli@lf-fasteignasala.is s. 695-8080 kynna:

Hlíðarendavegur 1a, Eskifirði, Fjarðabyggð.

Einbýli með möguleika á útleiguíbúð á neðri hæð (er þannig núna) og sérlega skemmtilegu útisvæði.

Rúmgott stæði fyrir 3-4 bíla framan við húsið.

Um er að ræða rúmgott og skemmtilegt, steinsteypt eldra íbúðarhús sem hefur verið vel við haldið. Núverandi eigendur hafa endurnýjað húsið talsvert innandyra á undanförnum árum.

Húsið er á tveimur hæðum. Efri hæðin er rúmgóð og skiptist í fjögur svefnherbergi, skemmtilegt opið eldhús með nýlegri innréttingu og rúmgott, nýlega endurnýjað baðherbergi með sturtu. Inn af eldhúsinu er þvottahús/geymsla með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt miklu skápaplássi. Úr þvottahúsinu er hurð sem leiðir beint út á pall bak við húsið. Á hæðinni eru einnig tvær bjartar og samliggjandi stofur með góðu útsýni út á fjörðinn.

Í miðri efri hæðinni er stigi niður á neðri hæð þar sem er lítil geymsla. Gengið er á milli hæða en opi hefur verið lokað með léttum vegg á meðan íbúð á neðri hæð er í útleigu. Lítið mál er að opna aftur og gera innangengt milli hæða.

Á neðri hæð hefur verið innréttuð smekkleg íbúð með tveimur góðum svefnherbergjum, litlu baðherbergi með sturtu og eldhúskrók. Inngangur frá götu er inní neðri hæð hússins sem er í útleigu og skilar góðum leigutekjum.

Húsið er klætt að utan með góðri litaðri klæðningu og þak hússins var endurnýjað fyrir einhverjum árum. Hitaveita var leidd í húsið fyrir um það bil 20 árum og eru ofnar og ofnalagnir frá þeim tíma. Rafmagn og neyslulagnir hafa einnig verið endurnýjaðar. Gluggar eru í góðu ástandi. Hiti er í stétt framan við hús og í tröppum upp að aðaldyrum.

Framan við húsið er stór og skjólgóður sólpallur sem nær aftur fyrir húsið. Þar hefur á síðustu árum verið byggt upp mjög vandað og skemmtilegt útisvæði með skjólveggjum, heitum potti, góðu upphituðu útihúsi/gestahúsi og stóru gróðurhúsi, allt samtengt sólpallinum.

Á lóð vestan við húsið er hænsnakofi og aðstaða fyrir hænur.

Mjög hlýleg og góð eign sem stendur á fallegum og friðsælum stað.

Kort af Hlíðarendavegur 1A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu