Víðimýri 18
01-0101 · 740 Neskaupstað



109 dagar á sölu
45.900.000 kr
318.087 kr/m²
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu VÍÐIMÝRI 18, 740 Neskaupstaður. Fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýlishúsi.
Stutt alla almenna þjónustu s.s. í grunnskóla, menntaskóla og íþróttahús. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er steypt byggt árið 1966, eignin skiptist í íbúð 118.2 m² og geymslu 26.2 m², samtals 142.6 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri, hol/gangur, eldhús, stofa og borðstofa, þrjú herbergi, baðherbergi og snyrting.
Í sameign: Sér geymsla, anddyri/stigahús og tæknirými.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471-2858 |
Íbúð:
Anddyri íbúðar, flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur og skóskápar.
Eldhús, flísar á gólfi, U-laga eldhúsinnrétting, helluborð, vifta, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu, borðkrókur.
Hol/gangur er innaf anddyri, þaðan er innagengt í stofu, borðstofu, eldhús og að herbergjagangi.
Stofa og borðstofa, harðparketi á gólfi, útgengt er út á suður svalir frá stofu, tröppur liggja frá svölum niður í garð.
Herbergi I, hjónaherbergi, fimmdaldur fataskápur, harðparket á gólfi, útgengt er út á svalir úr hjónaherbergi.
Herbergi II, harðparket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi III, harðparket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi/þvottur, flísar á gólfi, gólfhiti, sturta, handklæðaofn, fíbó á veggjum í sturtu, gluggi. Þvottaaðstaða, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, snúrur.
Snyrting, flísar á gólfi, vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni, gluggi.
Sameign:
Sér geymsla 26.2 m² í kjallara gengið inn að aftanverðu (sér inngangur) undir svölum, málað gólf, frágangi í kringum glugga í geymslu er ekki fulllokið.
Andddyri/stigahús, teppalagður stigi.
Tæknirými, hitakerfi hefur verið endurnýjað og rafmagnstafla voru endurnýjuð árið 2022.
Gert er ráð fyrir möguleika í rafmagnstöflu á uppsetningu helðslustöðva rafbíla, enginn tengimöguleiki er hinsvegar til staðar.
Víðimýri 16 - 18, húsið er steypt, tvær hæðir og kjallari. Í húsinu eru fjórar íbúðir við einn stigagang.
Húsið er klætt að utan með standandi álklæðningu, kjallari er múraður og málaður. Plastgluggar og hurðir.
Bílastæði eru framan við hús, möl er í bílastæði. Steypt stétt liggur að inngangi hússins.
Húsið hefur verið drenað. Gluggar í húsinu voru endurnýjaðir árið 2022 og 2025. Lóð er 1.837,2 m² leigulóð í eigu Fjarðabyggðar.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-9811. Víðimýri 18, Fjarðabyggð.
Stærð: Íbúð 144.3 m².
Brunabótamat: 68.050.000 kr.
Fasteignamat: 38.200.000 kr.
Byggingarár: 1966
Byggingarefni: Steypa.
Eignarhald:
01.0 - Séreign. Rými 01 X Sameign allra 6.5 Brúttó m². 01 X Sameign allra 8.2 Brúttó m²
01 2 - Séreign. 01.0002 Geymsla 26.2 Brúttó m². 01.0101 Íbúð á hæð 118.2 Brúttó m².
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


























