HÚSASJÁ

Nesgata 5

01-0101 · 740 Neskaupstað

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

300 m²

Stærð

11

Herbergi

6

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1900

Byggingarár

446 m²

Lóð

Garður

Svalir

Friðað

Geymsla

Þvottahús



716 dagar á sölu

sell

69.500.000 kr

231.358 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í sölu NESGATA 5 - Sigfúsarhús nú HOMMAHÖLLIN, 740 Neskaupstaður. Húsið er myndarlegt timburhús á tveimur hæðum, norskt kataloghús.

Húsið var upprunalega byggt sem heimili og verzlun en hefur verið nýtt á ýmsan hátt í gegnum tíðina nú síðast sem menningarheimili með vinnustofum listamanna og hefur gengið undir nafninu Hommahöllin.

Húsið var tekið í gegn að innanverðu og fært nær upprunalegu horfi á árunum 2020-2021. Húsið er staðsett rétt við sjóinn í hjarta Norðfjarðar. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er timburhús byggt árið 1895, skráð byggingarár er 1900, tvær hæðir og kjallari, ásamt viðbyggingu stærð 300,4 m² samkvæmt skráningu HMS.

Húsið er stærra en skráning segir til, kjallari u.þ.b. 70 m² og viðbygging u.þ.b 50 m² eru ekki inni í þeirri tölu.

Skipulag eignar; Neðri hæð: Anddyri, tvær stofur, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla og vinnustofa. Efri hæð: 6 svefnherbergi, baðherbergi og eldhús/þvottahús.

Nánari lýsing:

Anddyri með innbyggðum skáp.

Tvær stofur u.þ.b 65 m², nýleg kamína (útblástursrör ótengt), gengið er frá við kamínu með brunavörn og hömruðum kopar.

Borðstofa, þar eru upprunlegar rósettur og listar, opinn bar er í borðstofu að eldhúsi.

Eldhús u.þ.b 18 m², tvöföld SMEG eldavél með gasi og rafmagnsofnum, sérinnfluttur ítalskur háfur, innbyggður ísskápur og innbyggður frystir.

Baðherbergi er í viðbyggingu aftan við eldhús, sturta, salerni og handlaug.

Þvottahús og geymsla í sama rými, skápa innréttingar eins og í eldhúsi.

Vinnustofa u.þ.b 65 m² ásamt annarri minni vinnustofu, þar var áður verzlun.

Svefnherbergin eru 6 í dag, tvö þeirra eru með fataherbergi innaf. Möguleiki er á að fjölga herbergjum í 8.

Baðherbergi efri hæðar er óuppgert, sturta, salerni og handlaug.

Eldhús/þvottahús er óuppgert, möguleiki er á að fjölga baðherbergjum í tvö.

Útgengt er frá efri hæð út á viðbyggingu, möguleiki er á að setja þar upp svalir.

Húsið var tekið í gegn aðinnanverðu og fært nær upprunalegu horfi á árunum 2020-2021. Gólfefni og veggfóður sérpantað. Gerefti, loftlistar og skrautlistar endurgerð í upprunalegri mynd.

Vatns- og ofnakerfi endurnýjað. Húsið er kynnt með rafmagni og loft í loftdælu. Rafmagn endurnýjað að mestu leyti. Tvö eldhús, tvö baðherbergi og þvottahús endurnýjuð.

Ný gólfefni á alla neðri hæðina, upprunalegar gólffjalir á efri hæð pússaðar upp.

Húsið er timburhús, klætt að utan. Steyptar tröppur liggja að aðal anddyri hússins, hellulagt er framan við hús. Lóð er gróin. Malbikað bílastæði er við hússins og samliggjandi götu.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Nesgata 5

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð