HÚSASJÁ

Nesbakki 15

02-0101 · 740 Neskaupstað

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

68 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1979

Byggingarár

2875 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



262 dagar á sölu

sell

28.000.000 kr

414.815 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu NESBAKKI 15, ÍBÚÐ 101, 740 Neskaupstaður. Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi. Húsið stendur við lítinn botnlanga í grónu hverfi í Neskaupstað. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi.

Í sameign: Geymsla undir stiga sameiginleg með íbúð 102, vagna- og hjólageymsla.

Nánari lýsing:

Anddyri, fatahengi.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, (sjónvarpskenkur getur fylgt með). Útgengt er frá stofu út á timburverönd með skjólveggjum.

Kominn tími á viðhald á verönd. Svalahurð er aðeins stíf.

Eldhús, upprunaleg innrétting, spaneldavél, ísskápur getur fylgt með.

Tvö svefnherbergi, stærra herbergið er með þreföldum fataskáp, ekki er fataskápur í minna herberginu.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, salerni og vaskinnrétting (upprunaleg). Þrýstingur á heitu vatni í vaski er lítill inn á baði.

Speglaskápur, þvottavél er á baðherbergi og getur hún fylgt með ef kaupandi vill.

Gólfefni: Flæðandi harðparket er á stofu, borðstofu og svefnherbergjum. Flísar á eldhúsi og baðherbergi.

Í sameign er sameiginleg geymsla (undir stiga), hjóla- og vagnageymsla og inngangur/anddyri.

Húsið Nesbakki 13-17 er þriggja hæða hús með þremur stigahúsum. Húsið er steinsteypt byggt árið 1979, gaflar hússins eru klæddir.

Sex íbúðir eru í hverjum stigagangi, tvær íbúðir eru á hverri hæð. Þak er risþak klætt járni, þak eignarinnar hefur verið endurnýjað ásamt þakrennum og þakköntum.

Lóð er gróin, sameiginleg, bílastæðalóð framan við husið er mallbikuð. PVC gluggar eru í öllum rýmum utan stofu þar eru timburgluggar.

Skráning eignarinnar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-9530. Nesbakki 15, Fjarðabyggð.

Stærð: Íbúð 67.5 m².

Brunabótamat: 33.750.000 kr.

Fasteignamat: 26.350.000 kr.

Byggingarár: 1979

Byggingarefni: Steypa

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Nesbakki 15

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu