HÚSASJÁ

Mýrargata 19

01-0101 · 740 Neskaupstað

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

114 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1960

Byggingarár

219 m²

Lóð

Þvottahús



16 dagar á sölu

sell

47.900.000 kr

419.807 kr/m²

Mýrargata 19, Neskaupstað: Vel staðsett og talsvert endurnýjuð endaíbúð í raðhúsi, miðsvæðis í Neskaupstað.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Eignin skiptist upp í forstofu, lítið hol og þar inn úr er lítið salerni, rúmgóð stofa. Upp 3 tröppur má svo finna borðstofu, eldhús og rúmgott þvottahús þar inn af. Útgengt er úr þvottahúsi í bakgarð, þar erum 11m2 geymsluskúr sem fylgir eigninni. Frá borðstofu/eldhúsi er teppalagður stigi upp á efri hæð. Þar eru 3 svefnherbergi, tvö þeirra mjög lítil en lítið mál að pna á milli og sameina. Einnig er baðherbergi með baðkari á hæðinni og gangur með útskoti sem nýtist sem vinnuaðstaða.

- Stutt í alla helstu þjónustu

- Nýjir gluggar á allri neðri hæð

- Ljósleiðari kominn inn og tengdur

- Nýjir rofar/tenglar í flestöllum rýmum

- Nýlegt parket

SKIPULAG EIGNAR:

- NEÐRI HÆÐ:

Forstofa: Flísalögð, nýlega skipt út og nýr ofn settur upp.

Hol: Er beint inn af forstofu, parketlagt, þar undir stiganum er að finna litla en hentuga snyrtingu.

Stofa: Gott opið rými parketlagt og þaðan er gengt upp á næsta pall.

Borðstofa: Er í opnu rýmu ásamt stofu en uppi á palli 3 þrepum ofar, parketlögð, þar er þakgluggi með nýlegu gleri.

Eldhús: Er inn af borðstofu, þar er rúmgóð og snyrtileg innrétting, dúkur á gólfi

Þvottahús: Rúmgott og heiðarlegt þvottahús, þaðan er útgengt í bakgarðinn.

Geymsluskúr: Kaldur skúr í bakgarði fylgir eigninni, ca 11m2

Að framanverðu er rúmgóð timburverönd með skjólveggjum

-Efri hæð:

Gangur/útskot: Parkelagt, fínt rými með ágætis útskoti sem nýta má sem heimaskrifstofu eða leshorn.

Svefnherbergi 1: Með dyrum út á svalir, parketlagt. Var áður sameinað herberginu við hliðina, lítið mál að opna á milli.

Svefnherbergi 2: Mjög lítiðm parketlagt. Var áður sameinað herberginu við hliðina, lítið mál að opna á milli.

Svefnherbergi 3: Parketlagt og afar rúmgott, þar innaf er svo fínasta fataherbergi.

Baðherbergi: Flísalagt með ágætri innréttingu og baðkari með sturtugleri.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:

Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Skráning eignarinnar skv. HMS:

Fasteignanúmer: F2169422

Stærð: Fjölbýlishús, 114,1 m²

Byggingarár: 1960

Byggingarefni: Steypt

Gildandi fasteignamat: 34.600.000 kr.

Brunabótamat: 55.950.000 kr.

Lóð: Leigulóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 219,2 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

Kort af Mýrargata 19

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu