HÚSASJÁ

Miðstræti 18

01-0101 · 740 Neskaupstað

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

323 m²

Stærð

10

Herbergi

7

Svefnherbergi

4

Baðherbergi

1946

Byggingarár

1120 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



69 dagar á sölu

sell

88.500.000 kr

273.994 kr/m²

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:

Miðstræti 18, Neskaupstað.

Steinsteypt hús með 3 íbúðum, einnig er 28 m2 bílskúr á lóðinni sem fylgir. Íbúðirnar eru u.þ.b. 47, 78 og 147 fermetrar,

allar með sérinngangi.

Stærsta íbúðin er á efri hæðinni. Þar er komið inn í ágæta forstofu og er snyrting þar við hliðina. Úr forstofunni er komið ínn í rúmgóða stofu/borðstofu og er stórt herbergi þar við hliðina sem einnig er með dyr inn í lítið hol en við það hol eru 3 rúmgóð svefnherbergi, eitt með fataherbergi inn úr. Baðherbergi er einnig við holið, endurbætur á því eru langt komnar.

Úr holinu er gengið niður stiga í sameign íbúðanna sem er þvottahús, kyndiklefi og geymsla.

Eldhúsið á efri hæðinni er rúmgott með eldri innréttingu.

Linoleum gólfdúkur er á eldhúsinu.

Flísar eru á gólfi á baðherbergi, snyrtingu og forstofunni en parket á stofu og herbergjum.

Minnsta íbúðin er með eldhúsinnréttingu í sama rými og stofan en að auki er 1 svefnherbergi í íbúðinni og lítið baðherbergi með sturtu.

78 fermetra íbúðin er með eldhúsi og baðherbergi, 2 svefnherbergjum og stofu.

Bílskúrinn er steinsteyptur með nýlegri hurð. Bílskúrinn er upphitaður.

Íbúðarhúsið hefur verið klætt með steinaðri klæðningu.

Garðurinn er skjólgóður og gróðursæll.

Eignin er vel staðsett miðsvæðis í Neskaupstað og er Stefánslaug handan götunnar og stutt í flesta þjónustu.

Kort af Miðstræti 18

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu