HÚSASJÁ

Hlíðargata 14

01-0101 · 740 Neskaupstað

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

139 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1925

Byggingarár

378 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



29 dagar á sölu

sell

75.000.000 kr

281.743 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu VINAMINNI - HLÍÐARGATA 14 og 14A, 740 Neskaupstaður. Parhús á tveimur hæðum auk kjallara, tvö fastanúmer.

Ýmsir möguleikar: Eign fyrir stóra fjölskyldu, sameining beggja eigna eða aukaíbúð með leigutekjum. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er steypt byggt árið 1925, tvær hæðir og kjallari.

Húsið skiptist í Hlíðargata nr. 14, 139.0 m² og Hlíðargata nr. 14 A, 127.2 m², samtals 266.2 m² samkvæmt skráningu HMS.

HLÍÐARGATA 14 (íbúð í austur), skipulag;

Neðri hæð: Forstofa, gangur, hol/stigahús, stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla.

Efri hæð: Fjögur herbergi, hol/stigahús og snyrting.

HLÍÐARGATA 14A (íbúð í vestur), skipulag;

Neðri hæð: Forstofa, baðherbergi/þvottur, stigi.

Efri hæð: Stofa, eldhús og borðstofa og herbergi.

Kjallari: Geymslur.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing: HLÍÐARGATA 14, gengið er frá bílastæði framan við húsið upp stiga að inngangi íbúðar.

Neðri hæð:

Forstofa, flísar á gólfi, skóskápur (fylgir ekki) og fatahengi. Innangengt er frá forstofu í geymslu.

Geymsla, flísar á gólfi og hillur, gluggi. Gangur er innan við forstofu, við enda gangs er hol/stigahús, þaðan er gengið upp teppalagðan stiga á efri hæð.

Stofa og borðstofa, opið er á milli stofa, harðparket á gólfi, vegghengdur skápur í stofu fylgir, eldhús er opið við borðstofu.

Eldhús, L-laga innrétting, harðparket á gólfi, helluborð, Samsung ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt) borðkrókur.

Baðherbergi, flísar á gólfi, vaskinnrétting, upphengt salerni, baðkar og sturta, gluggi, Fíbóplötur á veggjum í sturtu og við baðkar.

Þvottahús, flísalagt í hólf og gólf, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, vinnuborð, handklæðaofn og gluggi.

Efri hæð:

Hol/stigahús, harðparket á gólfi, þaðan er innangengt í önnur rými efri hæðar.

Herbergi I, hjónaherbergi, harðparket á gólfi.

Herbergi II, harðparket á gólfi.

Herbergi III, harðparket á gólfi.

Herbergi IV, harðparket á gólfi

Snyrting, flísar á gólfi, handlaug og upphengt salerni.

Íbúðin á geymslu í kjallara hússins, steypt gólf, skiptist í geymslur.

Nánari lýsing: HLÍÐARGATA 14A, gengið er frá bílastæði framan við húsið að inngangi íbúðar.

Neðri hæð:

Forstofa, flísar á gólfi, frá forstofu er innangengt um stiga upp á efri hæð og á baðherbergi.

Baðherbergi/þvottur, flísar á gólfi, vaskinnrétting, upphengt salerni, sturta gluggi og handklæðaofn.

Þvottaaðstaða er á baðherbergi, tengi fyrir eina vél, skápur.

Efri hæð:

Eldhús og borðstofa, opið er á milli, harðparket á gólfi,

Eldhús, innrétting, helluborð og ofn, vifta, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu (getur mögulega fylgt).

Stofa, harðparket á gólfi.

Herbergi I, hjónaherbergi, harðparket á gólfi.

Íbúðin á geymslu í kjallara hússins, steypt gólf, skiptist í geymslur.

Híðargata 14 og 14A er parhús, tvær hæðir auk kjallara.  Húsið er steypt, hæðir eru klæddar að utan með bárujárni, kjallari er málaður. Þak er klætt bárujárni.

Sér inngangur er í hvora íbúð, tveir inngangar eru í kjallara. Lóðir eru frágengnar.

Á lóð við nr.14 er malbikað bílastæði framan við hús, pláss fyrir tvær bifreiðar, steyptar tröppur liggja þaðan að inngangi íbúðar.

Við inngang er timburverönd með skjólveggjum, heitur pottur er á verönd.

Á lóð við nr. 14A er malbikað bílastæði aftan við hús, pláss fyrir tvær bifreiðar, timburverönd er við inngang íbúðar.

Við hlið hússins (íbúðar) er timburverönd með skjólveggjum. Gróðurhús stendur í útjaðri lóðar, gróðurhúsið stendur að mestu leyti fyrir utan útlínur lóðarmarka sjá nánar Landeignaskrá.

Ekki er starfandi húsfélag í eigninni.

Lóð nr. 14 er 378.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 30. júlí 1949. Skjal nr. 428-N-B119/1949

Lóð nr. 14A 252.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 30. júlí 1949. Skjal nr. 428-N-E120/1949.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-9187. Hlíðargata 14, Fjarðabyggð.

Stærð: Parhús 139.0 m².

Brunabótamat: 60.600.000kr.

Fasteignamat: 34.900.000 kr.

Byggingarár: 1925.

Byggingarefni: Steypa.

Eignarhald: 01.2- Séreign.

Rými 01.0001 Geymsla 26 Brúttó m². 01.0101 Íbúð á hæð 55.5 Brúttó m²​​​​​​. 01.0201 Íbúðarherbergi í kjall 55.5 Brúttó m²​​​​​​.

Landeignanúmer 155493, Íbúðarhúsalóð 378,0 m².

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-9188. Hlíðargata 14A, Fjarðabyggð.

Stærð: Parhús 127.2 m².

Brunabótamat: 60.450.000kr.

Fasteignamat: 32.650.000 kr.

Byggingarár: 1925.

Byggingarefni: Steypa.

Eignarhald: 01.2- Séreign.

Rými 01.0001 Geymsla 18 Brúttó m². 01.0101 Íbúð á hæð 54 Brúttó m²​​​​​​. 01.0201 Íbúðarherbergi í risi 55.2 Brúttó m²​​​​​​.

Landeignanúmer 155494, Íbúðarhúsalóð 252,0 m².

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Hlíðargata 14

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32