HÚSASJÁ

Hafnarbraut 4

01-0201 · 740 Neskaupstað

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
10 myndir

81 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1924

Byggingarár

300 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir



178 dagar á sölu

sell

20.000.000 kr

247.525 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HAFNARBRAUT 4, „BRENNA", 740 Neskaupstaður.

Þriggja herbergja íbúð með sér inngangi á hæð í þríbýlishúsi. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er timburhús, byggt árið 1924. Eignin er íbúð, samtals 80,8 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, tvö herbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing:

Anddyri, flísar á gólfi, snagar á vegg. Rafmagnstafla.

Frá anddyri er gengið inn í herbergi I, stofu, borðstofu og baðherbergi.

Baðherbergi, sturtuklefi standandi salerni og handlaug. Pláss er fyrir litla þvottavél, en það er ekki tengi fyrir hana. Flísar á gólfi.

Herbergi I, plastparket á gólfi.

Stofa og borðstofa saman í einu rými, parket á gólfi.

Eldhús, lítil innrétting með efri og neðri skápum, tvær hellur í borði og vaskur. ATH. enginn bakaraofn er til staðar í eldhúsi.

Herbergi II er inn af eldhúsi. Parket á gólfi.

Hafnarbraut 4 er timburhús á þremur hæðum. Sér inngangur er inn í alla eignarhluta hússins. Steyptar tröppur er fyrir framan inngang hússins.

Lóð er malbikuð og er hægt að keyra báðu megin við húsið.

Skráning eignarinnar hjá HMS:

Fastanúmer 216-9112. Hafnarbraut 4.

Stærð: 01.0201 Íbúð 80,8 m².

Brunabótamat: 30.000.000 kr.

Fasteignamat: 29.450.000 kr.

Byggingarár: Íbúð 1924.

Byggingarefni: Timbur.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Hafnarbraut 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð