HÚSASJÁ

Miðtún 3

01-0101 · 710 Seyðisfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

146 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1965

Byggingarár

Sérinngangur

Svalir

Geymsla

Þvottahús



411 dagar á sölu

sell

39.500.000 kr

269.809 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í sölu MIÐTÚN 3, 710 Seyðisfjörður. Einbýlishús á pöllum með innbyggðum bílskúr sem var nýttur sem „íbúð".

Húsið er laust til afhendingar við kaupsamning. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er steypt, byggt árið 1965, kjallara 50.4 m², hæð (neðri pallur) 49.2 m² og hæð (efri pallur) 46.8 m², samtals 146.4 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar;

Hæð (neðri pallur): Anddyri, skáli, eldhús og stofa, stigi og tröppur. Hæð (efri pallur): Þrjú herbergi, gangur og baðherbergi.

Kjallari: Þvottahús, geymsla og inntök, bílskúr/„íbúð" - anddyri/eldhús, herbergi og baðherbergi.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Gengið er upp timbur tröppur að anddyri hússins, þar við er timburverönd.

Hæð (neðri pallur): Anddyri, flísar á gólfi, þaðan er gengið inn í skála, rafmagnstafla.

Skáli, parket á gólfi, þaðan er gengið til hægri í eldhús og til stofu, til vinstri liggja tröppur á efri pall og stigi niður í kjallara.

Eldhús, upprunaleg U-laga innrétting, helluborð, vifta og ofn í vinnuhæð, gert er ráð uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur fylgt), borðkrókur,

lúga er í innréttingu yfir í skála. Skáli hefur verið nýttur sem borðstofa, skápur er neðan við lúgu úr eldhúsi.

Stofa er opin við skála, parket á gólfi, upptekið loft, panilklæðning.

Tröppur að hæð (efri palli) eru parketlagðar, gangur með parketi á gólfi.

Herbergi I, hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur, parket á gólfi

Herbergi II, parket á gólfi.

Herbergi III, parket á gólfi.

Baðherbergi, dúkflísar á gólfi, veggir eru flísalagðir upp á miðjan vegg að mestu leyti. Vaskinnrétting, salerni og sturta, gluggi.

Stigi, málaður, neðan við stiga er þvottahús og geymsla, steypt málað gólf, sturta, útgengt er úr þvottahúsi út í bakgarð um steyptan stiga.

Inntaksrými er inn af þvottahúsi, málað gólf.

Bílskúr/„íbúð", bílskúr hefur ekki verið nýttur sem bílskúr heldur sem „íbúð", gert er ráð fyrir anddyri/eldhúsi, herbergi og baðherbergi.

Anddyri/eldhús, búið er að fjarlægja innréttingu úr eldhúsi, málað gófi, innangengt í herbergi og baðherbergi.

Herbergi, korkur á gólfi, fataskápur innbyggður án hurða, gluggar. Baðherbergi, dúkur á gólfi, handlaug, salerni og sturtuaðstaða.

ATH ekki er um að ræða skráða íbúð, ekkert liggur fyrir um hvort umrædd nýting samrýmdist kröfum opinberra aðila, eins og heilbrigðis- og byggingaryfirvalda, enda er rýmið upprunalega teiknað sem bílskúr.

Miðtún 3 er steypt hús á pöllum, hæðir eru klæddar að utanverðu með járn- og timburklæðningu í bland. Kjallari er Steniklæddur að mestu leyti og málaður að hluta til. Tvíhalla þak, járn á þaki, timburgluggar og hurðar. Annar hluti þaksins var endurnýjað fyrir um 3 árum, það er dúkur á lægri stallinum en nýlegt bárujárn á efri stallinum og þakkanntar.

Hellulögð stétt er framan við húsið að tröppum upp að inngangi. Malbik er í bílastæði framan við bílskúr.

Timburverönd er framan og aftan við húsið. Lóð er gróin.

Lóð er gróin, 630.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.

Helmingur þaks var endurnýjaður fyrir u.þ.b. 5-10 árum, hinn helmingurinn var endurnýjaður árið 2023.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-8621. Miðtún 3, Múlaþing.

Stærð: Íbúð 146.4 m².

Brunabótamat: 69.800.000 kr.

Fasteignamat: 33.700.000 kr.

Byggingarár: 1965.

Byggingarefni: Steypa

Eignarhald:

01.0001- Íbúðarherberbergi í kjallara 20.8 Brúttó m².

01.0002 - Íbúðarherberbergi í kjallara 29.6 Brúttó m².

01.0101- Íbúð á hæð 49.2 Brúttó m².

01.0102- Íbúðarherberbergi á hæð 46.8 Brúttó m².

Landeignanúmer: L155145. Íbúðarhúsalóð.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Miðtún 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu