HÚSASJÁ

Austurvegur 53

01-0101 · 710 Seyðisfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

167 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1915

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Friðað

Geymsla

Þvottahús



184 dagar á sölu

sell

32.500.000 kr

194.961 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu AUSTURVEGUR 53, 710 Seyðisfjörður. Einbýlishús á þremur hæðum, kjallari, hæð og ris. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er byggt árið 1915, skiptist í kjallara, 61.7 m², hæð 61.7 m² og ris 43.3 m², samtals 166.7 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar; Hæð: Anddyri, stofa og borðstofa, eldhús og baðherbergi. Rishæð: Þrjú herbergi og gangur.

Kjallari: Kyndiklefi/hol, geymsla/vinnuherbergi, þvottahús, geymsla og geymsla undir stiga.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing;

Hæð:

Anddyri, dúkflísar á gólfi, einfaldur fataskápur og fatahengi.

Stofa og borðstofa, plastparket á gólfi, opið inn í eldhús, þaðan liggur timburstigi upp á risloft.

Eldhús, harðparket á gólfi, U-laga innrétting, eldavél, háfur og stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.

Baðherbergi er inn af anddyri, flísar á gólfi og tveimur veggjum. Upphengt salerni, vaskeinnrétting og skúffur, speglaskrápar og sturtuklefi, gluggi.

Rishæð:

Gangur er ofan við stiga, plastparket á gólfi, á gangi er innbyggður skápur.

Herbergi I, plastparket á gólfi, fjórfaldur fataskápur.

Herbergi II, dúkflísar á gólfi.

Herbergi III (inn af herbergi II), verkmannaparket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.

Kjallari:

Kyndiklefi/hol, flísar á gólfi, rafmagnstafla, hitakútur og hitagrind, útgengt í bakgarð.

Geymsla/vinnuherbergi, veggfastar hillur, ómálað gólf.

Þvottahús, málað gólf, vaskur í borði, málað gólf.

Geymsla, ómálað gólf.

Geymsla undir stiga, ókynnt.

Austurvegur 53 er einbýlishús á þremur hæðum, kjallari, hæð og ris. Steyptir útveggir málaðir nema austurhlið sem er klædd, steypt gólf í kjallara, gólf á hæð og risi er úr timbri.

Risþak, járn á þaki, timburgluggar og hurðar. Steypt stétt er framan við húsið að tröppum upp að inngangi. Lóð er gróin, 271.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.

Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjað fyrir u.þ.b. 20-25 árum.Frárennsli frá salerni hefur hingað til verið í lagi og ekki endurnýjað lengi. Frárennsli frá eldhúsvaski og húsinu sjálfu var endurnýjað fyrir nokkuð mörgum árum. Gluggar á austurhlið eru innan við 15 ára. Skipt var um þakjárn og pappa fyrir í kringum 25 árum. Drenað hefur verið í kringum húsið og settur brunnur með dælu.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-8329. Austurvegur 53.

Stærð: Íbúð 166.7 m².

Brunabótamat: 65.800.000 kr.

Fasteignamat: 30.600.000 kr.

Byggingarár: Íbúð 1915.

Byggingarefni:Timbur

Eignarhald:

01.0001 Íbúðarherbergi í kjallara 61.7 Brúttó m².

01.0101 Íbúð á hæð 61.7 Brúttó m²​​​​​​.

01.0201 Íbúðarherbergi í risi 43.3 Brúttó m².

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Austurvegur 53

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð