Austurvegur 44
01-0101 · 710 Seyðisfirði



179 dagar á sölu
31.000.000 kr
253.682 kr/m²
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu AUSTURVEGUR 44, 710 Seyðisfjörður.
Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt stakstæðum bílskúr. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Íbúðarhús byggt árið 1945, 96.2 m² að stærð og bílskúr byggður árið 1962, 26.0 m² að stærð, samtals 122.2 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar; Neðri hæð: Anddyri, tvö herbergi, hol/gangur geymsla og baðherbergi. Efri hæð: Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, herbergi. Bílskúr.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |
Nánari lýsing;
Neðri hæð: Anddyri, dúkur á gólfi, gangur er innan við forstofu, þaðan liggur timburstigi upp á hæð.
Tvö herbergi, bæði án fataskápa.
Hol/gangur, þaðan liggur timburstigi upp á efri hæð, þvottaaðstaða, hitakútur og inntök.
Baðherbergi, salerni, handlaug og baðkar undir stiga.
Geymsla, er inn af holi/gangi.
Efri hæð: Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, frá stofu er útgengt út á svalir.
Eldhús, upprunaleg innrétting, helluborð (tvær hellur), ofn og vifta, stálvaskur, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Eldavél er óvirk, en ný eldavél fylgir.
Herbergi er inn af alrými.
Austurvegur 44, einbýlishús á tveimur hæðum, jarðhæð er steypt, efri hæð er byggð úr timbri forsköluð. Valmaþak, járn á þaki, timburgluggar og hurðar.
Þak var endurnýjað fyrir nokkrum árum síðan að sögn seljanda. Bílskúr er timburskúr með járni á þaki. Hellulögð stétt er framan við húsið, malarplan, lóð er gróin,
afgirt að framanverðu. Lóð er 260.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-8311. Austurvegur 44.
Stærð: Íbúð 96.2 m². Bílskúr 26.0 m². Samtals 122.2 m².
Brunabótamat: 47.000.000 kr.
Fasteignamat: 26.800.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 1945. Bílskúr 1962.
Byggingarefni: Steypt+timbur.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir




