Austurvegur 18
01-0201 · 710 Seyðisfirði



247 dagar á sölu
55.400.000 kr
245.676 kr/m²
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is
Um er að ræða rúmgóða, 225,5 fm, sér íbúðarhæð, auk 17,6 fm forstofu, samtals 243,1 fm. Þessi hæð má nýta sem gistipláss með 5-6 herbergum. Neðri hæð nánast full bókuð fyrir árið 2026.
Sexi herbergi eru í íbúðinni en mögulega er hægt að hafa átta herbergi, til útleigu. Auk þess er stórar svalir í suður með skjólveggjum. Þessi eign hentar stórri fjölskyldu eða til útleigu fyrir ferðamenn. Íbúðin selst með neðri hæð sem er gistiíbúðir.
Byggja mætti 185 fm við þessa hæð á ,,svalagólfi" sem er nægt pláss til að byggja á. En halda eftir verönd í suður.
Nánari lýsing:
Mjög rúmgóð íbúð með sér inngangi á efri hæð. Gengt upp sér úti tröppur að ofanverðu.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með múrflotuðu gólfi. Hægt er að ganga þar inn í íbúðina og út á svala-verönd í suður.
Sex herbergi, stór stofa, tvennar snyrtingar og böð. Ásamt búri/þvottahúsi og stóru eldhúsi. Rúmgott bað með góðum sturtuklefa. Innrétting er ljósleit og allt flísalagt, hvít tæki. Ljósar flísar á gólfi. Önnur snyrting með flísum á gólfi, með hvítum tækjum. Sér strtubað með flísum.
Herbergin eru öll með parketi og flest með skápum. Gangur og hol er með parketi. Eldhús, allt með tækjum og plássmikilli innréttingu með ljósum físum á gólfi. Ískápur og uppþvottavél fylgja með, auk annarra eldhúsverkfæra. Góð vinnuaðstaða og plássmikill borstofuaðstaða í eldhúsi. Stofan er björt og hátt til lofts með parketi. Þarna er mjög gott útsýni yfir sjóinn, upp til fjalla og inn og út fjörðinn. ,,Bjartir" gluggar.
Aðkoman er snyrtileg og auðveld. Húsin eru staðsett við aðalbraut bæjarins og er í góðu göngufæri við alla þjónustu í bænum.
Góð sér bílastæði og opið rými við húsin sem gefur gott útsýni út og inn fjörðinn.
Gott skipulag eru í húsinu og auðvelt er að þrífa. Húsið er mjög hagstæð í rekstri og viðhaldi. Vel hljóð- og varmaeinangruð.
Húsin eru ein af nokkrum byggingum á Seyðisfirði sem hafa verið endurgerðar. Auka má nýtingagetu hússins, með breytingum.
Mögulegur byggingaréttur fyglir með á veröndinni, sem stækkar rýmið verulega og eykur þannig not hússins í heild.
Neðri hæð til gistingar er einnig til sölu.
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





























