HÚSASJÁ

Langanesvegur 11

01-0101 · 680 Þórshöfn

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

228 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1944

Byggingarár

Garður

Bílskúr

Þvottahús



736 dagar á sölu

sell

43.500.000 kr

190.789 kr/m²

Fasteignasala Þórshafnar kynnir:

Langanesvegur 11

"Emilshús" er 165 fm einbýlishús á einni hæð, byggt árið 1944 úr steinsteypu, ásamt 63 fm  steinsteyptum bílskúr, byggðum 1983, samtals er eignin 228 fm. Elsti hluti hússins er með valmaþaki en viðbygging (byggð 1971) til vesturs og bílskúr eru með tvíhalla þaki.

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu/þvottahús, flísalagt  með hita í gólfi, nýleg stór  Brúnás innrétting á þrem veggjum. Inn af þvottahúsi er hita/lagnakompa. Úr þvottahúsi er gengið inn á gang, við ganginn eru dyr að baðherbergi, stofu/borðstofu og eldhúsi. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og veggjum, vegghengt salerni, baðkar og nýleg innrétting, hiti í baðgólfi. Við enda gangs er gengið inn í stofu, úr samliggjandi borðstofu eru dyr með rennihurð að eldhúsi. Parket á og hiti í eldhúsgólfi, gömul máluð innrétting er komin á tíma. Úr eldhúsi er gengið inn á  L-laga svefnherbergjagang, við hann eru fjögur svefnherbergi og útidyr sem snúa að palli milli húss og bílskúrs. Stórt hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp og svaladyr í átt að Bakkavegi.

Við hlið hjónaherbergis er lítið barnaherbergi, nýtt sem skrifstofa, tvö stærri barnaherbergi með fataskápum eru á móti hjónaherbergi.

Parket er á gólfum allra rýma í húsinu nema á baðherbergi og þvottahúsi sem eru flísalögð og lagnakompa er með máluðu gólfi.                                  Húsið er hitað með rafmagni, gólfhita og þilofnum.                                                                                                                                                                  Bílskúr er skipt að endilöngu með léttum millivegg, máluð gólf, gamlir gluggar sem virðast í þokkalegu lagi, tvennar útidyr og bílskúrshurð farnar að daprast. Steypt bílastæði frá skúr að götu.

Helstu endurbætur síðustu ár: 2009-2011 er skipt um þakjárn og þakkant, glugga og útihurðar ásamt loftaefni innandyra og vatnslagnir að baðherbergi og þvottahúsi. Baðherbergi og þvottahús endurnýjuð á sama tíma ásamt gólfefnum og innihurðum í eldri hluta hússins. Byggður sólpallur og steypt stétt milli húss og bílskúrs.  2016 eru innihurðar og gólfefni á yngri hluta endurnýjuð og settir nýjir skápar í svefnherbergi. 2019 eru útveggir viðgerðir og húsið málað, lóð endurbætt og þökulögð. 2022 er þakjárn og þakkantur á bílskúr endurnýjað.Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 8592925 eða tölvupósti srk66@simnet.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Þórshafnar hvetur því

væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Langanesvegur 11

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19