HÚSASJÁ

Tjarnarholt 7

01-0101 · 675 Raufarhöfn

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

132 m²

Stærð

4

Herbergi

1976

Byggingarár

Geymsla

Þvottahús



31 dagar á sölu

sell

25.000.000 kr

188.964 kr/m²

Á austurströnd Melrakkasléttu er Raufarhöfn, nyrsta alla þorpa á  Íslandi. Hvergi á Íslandi verður vornóttin bjartari né vetrardagurinn myrkari. Heimskautsbaugur er rétt við ströndina og á ásnum fyrir ofan þorpið er Heimskautsgerðið, stærsta útilistaverk á Íslandi sem tvinnar saman íslenska menningu, bókmenntasögu og sígild vísindi við sérstæðar náttúruaðstæður.

Til sölu Tjarnarholt 7 á Raufarhöfn. Húsið sem er byggt 1976 og telur 109,9 m² að viðbættum 22,4 m², var allt endurnýjað innanvert fyrir einum 8 árum og klætt að utan fyrir 2 árum. Í húsinu eru 3 svefnherbergi, stofa, eldhús, salerni, gestaklósett inn af anddyri og stort þvottahús/geymsla. Úr stofu er gengið út í sólstofu og þaðan út á sólpall sem snýr til suðurs og vesturs. Varmadæla sett upp nýverið og eru gluggar allir nýir sem og klæðning á þaki. Einstaklega snyrtileg eign sem þarfnast ekki neins viðhalds.

Kort af Tjarnarholt 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu