Boðagerði 1
01-0101 · 670 Kópaskeri



456 dagar á sölu
28.900.000 kr
255.752 kr/m²
Fasteignasalan TORG kynnir :
Um er að ræða 113,0fm einbýlishús að Boðagerði 1 á Kópaskeri, einstaklega vel staðsett við sjávarsíðuna. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsluskúr í garði. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
NÁNARI LÝSING :
Forstofa með fatahengi, flísar á gólfi. Hol með lausum fataskáp, parket á gólfi. Stofa & Borðstofa með parketi á gólfi, útgengi út á ca.60fm verönd með skjólgirðingum og heitum potti. Eldhús með snyrtilegri IKEA innréttingu frá ca.2000, nýlegt spanhelluborð, parket á gólfi. Þrjú svefnherbergi, parket á tveimur og dúkur á einu. Baðherbergi með sturtu og baðkari, flísar á gólfi. Þvottahús er inn af eldhúsi með skápum, flísar á gólfi, útgengt út í garð frá þvottahúsi.
Að sögn eiganda : var þakið endurbætt árið 2003 og er allt timbur undir þakkamti frá 2006. Öll blöndunartæki í húsinu hafa verið endurnýjuð á síðustu 3 árum. Hús og þak var málað árið 2020. Húsið var allt málað að innan árið 2022. Gluggar í tveimur svefnherbergjum og í eldhúsi eru endurnýjaðir. Hitaveita er í húsinu með tveimur nýlegum varmaskiptum.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



















