HÚSASJÁ

Melgata 9

01-0101 · 610 Grenivík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

205 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1975

Byggingarár

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



355 dagar á sölu

sell

93.500.000 kr

457.213 kr/m²

Fasteignasalan Hvammur  -  466-1600  -  kaupa@kaupa.is

Melgata 9 á Grenivík - Fallegt og vel viðhaldið 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á skemmtilegum útsýnisstað á Grenivík. Heildarstærð eignar er 204,5 m² en þar af er bílskúrinn skráður 36,8 m²

Á síðustu árum hafa eigendur unnið eftirtaldar framkvæmdir:

2007 - Eldhúsinnrétting og innihurðar endurnýjaðar

2012 - Útitröppur við aðalinngang flísalagðar

2013 - Bílaplan endurnýjað og settur hiti í bílaplan

2016 - Skipt um járn og pappa á þaki og strompur fjarlægður

2019/2024 - Nýtt harðparket lagt á íbúðina í tveimur áföngum

2021 - Nýjar útidyrahurðir

2023 - Baðherbergi og snyrting endurnýjuð

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti:

Efri hæð: Forstofa, sjónvarpshorn, stofa og borðstofa, eldhús, búr, herbergi/geymsla, baðherbergi og fjögur svefnherbergi.

Neðri hæð: Þvottahús/bakinngangur, snyrting, svefnherbergi og bílskúr.

Nánari lýsing - efri hæð:

Forstofa er með dökkum flísum á gólfi.

Stofa, borðstofa og sjónvarpshorn eru í opnu rými. Þar er nýlegt harðparket á gólfi og gluggar með útsýni yfir fjöll og sjó. Úr borðstofunni er gengið út á timburverönd sem snýr til suðurs og vesturs

Eldhús er rúmgott og bjart með sérsmíðaðri eikarinnréttingu frá Ými og ljósar flísar á milli skápa. Þar er innbyggður ísskápur með frysti, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Harðparket er á gólfi. Góður borðkrókur.

Búr er inn af eldhúsi. Þar er harðparket á gólfum og hillur á veggjum.

Herbergi/geymsla er inn af eldhús. Þar er harðparket á gólfum og gluggi til vesturs.

Baðherbergi var endurnýjað á snyrtilegan hátt árið 2023. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, svört innrétting, handklæða ofn, upphengt wc og walk-in sturta. Opnanlegur gluggi.

Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni. Þau eru öll með harðparketi á gólfi. Fataskápar eru í tveimur herbergjum. Á ganginum fyrir framan herbergin eru spónlagðir eikar fataskápar.

Nánari lýsing - neðri hæð:

Þvottahús, þar eru flísar á gólfi og hvít innrétting. Úr þvottahúsi er gengið út á baklóð.

Snyrting var endurnýjuð árið 2023. Þar eru flísar á gólfi, upphengt wc og hvítur handlaugaskápur

Svefnherbergi á neðri hæð er með harðparketi á gólfi.

Bílskúr er mjög rúmgóður, skráður 36,8 m² að stærð. Þar eru flísar á gólfi, innkeyrusluhurð og sér gönguhurð.

Annað:

- Frábært útsýni yfir fjöll og sjó.

- Góð timburverönd sem snýr til suðurs og vesturs.

- Falleg og vel hirt lóð.

- Geymsluskúr á lóð.

- Bílaplan hitað með affalli af húsi.

- Varmaskiptir.

- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Melgata 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34