HÚSASJÁ

Bjarkarbraut 5

01-0301 · 620 Dalvík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

96 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1953

Byggingarár

750 m²

Lóð

Garður

Svalir



80 dagar á sölu

sell

31.500.000 kr

328.810 kr/m²

Bjarkarbraut 5 íbúð 201 - Mikið endurnýjuð 4ra herbergja risíbúð í þriggja íbúða húsi á mjög góðum stað á Dalvík - Stærð 95,8 m².

*** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning***

Allar upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, 888-6661, siggithrastar@kaupa.is

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.

Forstofa er með harðparketi á gólfi og fataskáp.

Eldhús er með ljósri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél og eldavél. Ágætur borðkrókur er í eldhúsi. Plastparket er á gólfi.

Stofa er nokkuð rúmgóð með harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi eru þrjú talsins, öll með harðparketi á gólfi og eitt með fataskáp.

Baðherbergi er með sturtuklefa, upphengdu wc og tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og opnanlegur gluggi.

Annað:

- Nýlegt harðparket.

- Nýlegir gluggar.

- Búið að endurnýja þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Bjarkarbraut 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu