Bjarkarbraut 5
01-0201 · 620 Dalvík



80 dagar á sölu
31.500.000 kr
320.774 kr/m²
Bjarkarbraut 5 íbúð 201 - Mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á annarri hæð í þriggja íbúða húsi á mjög góðum stað á Dalvík - Stærð 98,2 m².
*** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning***
Allar upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, 888-6661, siggithrastar@kaupa.is
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með nýlegri innréttingu, með innbyggðri uppþvottavél og eldavél. Ágætur borðkrókur er í eldhúsi. Plastparket er á gólfi.
Stofa er nokkuð rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi eru þrjú talsins, öll með harðparketi á gólfi og eitt með fataskáp.
Baðherbergi er með sturtuklefa, upphengdu wc og tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og opnanlegur gluggi.
Annað:
- Yfirfelldar nýlegar innihurðar.
- Nýlegt harðparket.
- Nýlegir gluggar.
- Búið að endurnýja þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir













