Bjarkarbraut 5
01-0101 · 620 Dalvík



159 dagar á sölu
29.900.000 kr
312.762 kr/m²
Bjarkarbraut 5 íbúð 101 - Ágæt 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi á mjög góðum stað á Dalvík - Stærð 95,6 m²
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og kalda geymslu.
Forstofa er með opnu fatahengi og flísum á gólfi
Eldhús er með gamalli innréttingu og ágætum borðkrók. Harðparket er á gólfi.
Stofa er með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú öll með harðparketi á gólfi og eitt með fataskáp.
Baðherbergi er með sturtuklefa, wc, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi
Geymsla er köld og er hún inn af forstofu, undir stiga uppá efri hæð.
Annað:
- Eignin er í útleigu.
- Nýlegir gluggar
- Nýlegt þak
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






