Brekkugata 25
01-0101 · 625 Ólafsfirði



3 dagar á sölu
24.900.000 kr
298.920 kr/m²
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Brekkugata 25 Ólafsfirði - Mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð í tvíbýlishúsi - stærð 83,3 m²
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu. Sameiginlegt þvottahús og sameiginlegur bakinngangur.
Forstofa og hol eru með flísum á gólfi og tvöföldum innfelldum skáp.
Eldhús, spónlögð eikar innrétting með dökkri stein bekkplötu og flísum fyrir ofan. Ísskápur er innfelldur í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Innfelld lýsing er í hluta af lofti. Borðkrókur með útsýnisglugga yfir bæinn.
Stofa er með parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og spónlögðum eikar fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, spónlögð eikar innrétting með dökkri stein bekkplötu, upphengt wc, sturta með glerhurðum og opnanlegur gluggi. Rennihurð er inn á baðherbergið.
Geymsla er með flísum á gólfi. Gengið er í gegnum geymsluna þegar farið er inn í þvottahúsið.
Þvottahús er í sameign með efri hæðinni og þar eru flísar á gólfi, eldri innrétting og opnanlegur gluggi. Við hliðina á þvottahúsinu er sameiginlegu bakinngangur með flísum á gólfi.
Annað
- Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2008, lagður gólfhiti, ný gólfefni, nýjar innihurðar, baðherbergi og eldhús endurnýjað, nýjir fataskápar o.fl.
- Gler og opnanleg fög var endurnýjað að stærstum hluta eftir árið 2007
- Raflagnir voru yfirfarnar og rafmagnstafla endurnýjuð árið 2008
- Þak var endurnýjað árið 2018 og húsið málað að utan.
- Vatns- og frárennslislagnir voru endurnýjaðar árið 2021
- Lóð er í sameign og er sameiginleg verönd sunnan við húsið.
- Hitalagnir eru í tröppum fyrir framan húsið.
- Sér hitaveitu- og rafmagnsmælar.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna














