HÚSASJÁ

Baughóll 27

01-0101 · 640 Húsavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

166 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1970

Byggingarár

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



32 dagar á sölu

sell

67.000.000 kr

404.589 kr/m²

Lögeign kynnir eignina Baughóll 27, 640 Húsavík.

Um er að ræða vel skipulagt 4 svefnherbergja einbýlishús á einni hæð ásamt innangengnum bílskúr. Húsið er byggt úr steypu árið 1970 og er samtals 165,6 M² og þar af er bílskúrinn 36,4 M².

Nánari Lýsing: Forstofa, stofa, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofu tekur við hol sem tengir saman öll önnur rými eignarinnar.

Stofa: parket á gólfi og stórir gluggar á einni hlið, við endan á stofunni er búið að búta hluta af henni undir auka svefnherbergi.

Eldhús: flísalagt gólf, hvít eldri innrétting sem er bæði með efri og neðri skápum og gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.

Fjögur svefnherbergi: þrjú eru staðsett á herbergisgang/holi og svo eitt við stofuna. Hjónaherbergið er með stórum fataskáp.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, hvít vaskainnrétting, vegghengd wc og sturtubaðkar.

Þvottahús: Þvottahúsð er flísalagt og með eldri vaskainnréttingu, sturtuklefa og útgengt út á bílaplanið ásamt annarri útidyrahurð sem er út í garð. innangengt er yfir í bílskúrinn úr þvottahúsinu.

Bílskúr: flísalagt gólf, nýleg rafdrifinn flekahurð og svo í endanum á bílskúrnum er lúga niður í gryfju.

Að utan: í kringum húsið er snyrtilegt, malar bílastæði upp að eigninni, steypt verönd að framan og svo tekur við gróinn garður.

Uppgerðarsaga:

Gólfhiti settur í húsið árið 2008

Allt gler endurnýjað að frátöldum þvottahús glugga c.a. árið 2008.

Þak málað og yfirfarið árið 2018

Pallur steyptur árið 2021

Rafmagnstafla endurnýjuð og innlagnar efni ásamt því að búið er að setja Plejd stýringu í flest rými ( árið 2024).

innihurðir endurnýjaðar árið 2024

Bílskúrshurð endurnýjuð árið 2025

Þakrennur og útiljós endurnýjað ásamt því að húsið var málað að utan bæði steinn og gluggar árið 2025

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Kort af Baughóll 27

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23