Baughóll 17
01-0101 · 640 Húsavík



456 dagar á sölu
39.500.000 kr
315.747 kr/m²
Fasteignasalan Byggð 464-9955
Gott fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt stakstæðum bílskúr. Húsið sem er að mestu upprunalegt býður upp á mikla möguleika fyrir laghenta einstaklinga. Í eigninni eru þrú svefnherbergi auk forstofu, þvotthúss, baðherbergis, stofu og eldhúss. Skipt var um hluta af gluggum árið 2012.
Nánari lýsing
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Þaðan er gengið bæði inn í geymslu og inn í hol.
Stofa: Stofan er inn af holi, með teppalögðu gólfi, og hentar vel bæði sem sjónvarpsstofa og borðstofa.
Svefnherbergi: þrjú svefnherbergi eru í húsinu; annað með dúk á gólfi og hitt parketlagt. Hjónaherbergið er með rúmgóðum fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergið er með dúk á gólfi og flísum á veggjum að hluta. Þar er hvítur skápur, vaskur, sturtubaðkar og WC.
Eldhús: Eldhúsið er með upprunalegri hvítri innréttingu.
Þvottahús: Þvottahúsið er inn af eldhúsi, með flísalögðu gólfi, tengi fyrir þvottavél og bakdyrainngangi
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna














