HÚSASJÁ

Þórunnarstræti 125

01-0101 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
71 myndir

177 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1965

Byggingarár

1053 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



695 dagar á sölu

sell

87.900.000 kr

496.330 kr/m²

EIGNAVER 460-6060

Þórunnarstræti 125  neðri hæð.   **** OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 24.FEBRÚAR MILLI KL: 16.15 OG 16.45 ****

Falleg, björt og mikið endurnýjuð fjögurra herbergja hæð í tvíbýli ásamt bílskúr. Íbúð á hæð er 128,7 fm, bílskúr 29,5 og geymslur 18,9. Samtals er eignin 177,1 fm.

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:

Forstofa, eldhús, stofa, þrjú svefnherbergi, gangur, baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjár sér geymslur í jarðhæð og bílskúr.

Nánari lýsing:

Forstofa er með parketi á gólfi og opnu fatahengi.

Eldhús með rúmgóðri grárri innrétting, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, span helluborð og bakarofn í vinnuhæð. Parket er á gólfi

Stofa/borðstofa þar er vítt til veggja og gluggar til tveggja átta. Parket er á gólfi.

Svefnherbergi eru þrjú talsins og eru öll með parketi á gólfi, góður fataskápur er í hjónaherbergi.

Gangur, þar er gott geymslupláss með innbyggðum skúffueiningum. Parket er á gólfi.

Baðherbergi er með fallegri dökkri innréttingu, spegill með ljósi, upphengt wc og walk in sturtuklefa. Físar eru á gólfi og hluta veggja. Úr baðherbergi er útgengt í bakgarð verönd og er þar möguleiki á að setja upp heitan pott.  er niður Í sameign eru þrjár sér geymslur, tveir litlar með hillum og ein stór með glugga.

Bílskúr er með steyptu gólfi og rafdrifinni bílskúrshurð.

Árið 2022 til 2023 var eignin tekin í gegn að innan og var ný eignaskiptayfirlýsing gerð þar sem rými í kjallara voru skilgreind

Annað:

- Ný eldhúsinnrétting og tæki.

- Allar innihurðar eru nýjar.

- Baðherbergi ásamt tækjum endurnýjað.

- Raflagnir og tafla endurnýjuð innan íbúðar sem og í kjallar rýmum.

- Gólfhiti innan íbúðar

- Sér mælir fyrir hvora eign í húsinu.

- Unifi netdiskar uppsettir í bílskúr og á hæð.

- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.

- Rafmagnstenglar í herbergjum eru með USB / USB-C tengjum.

- Allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar innan íbúðar.

- Varmaskiptir á vatni.

Nánari upplýsingar veita:

Tryggvi         s: 862-7919    / tryggvi@eignaver.is

Begga           s: 845-0671    /begga@eignaver.is

Arnar            s: 898-7011    / arnar@eignaver.is

Kort af Þórunnarstræti 125

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð