Þórunnarstræti 121
01-0201 · 600 Akureyri



32 dagar á sölu
85.900.000 kr
473.278 kr/m²
Þórunnarstræti 121 - Rúmgóð 6 herbergja hæð í þríbýlishúsi miðsvæðis á Akureyri - stærð 181,5 m²
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, 5 svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og þvottahús. 19,1 m² geymsla er í þrískiptum skúr norðan við íbúðarhús sem upphaflega var byggt sem bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og gólfhita. Teppi er á stiga upp á efri hæð og niður í kjallara.
Eldhús er með flísum á gólfi, gólfhita og hvít lakkaðri innréttingu með flísum á milli skápa. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja með við sölu eignar.
Stofa er með hvíttuðu harð parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru fimm, fjögur á hæð og eitt forstofuherbergi. Ljóst eikar parket er á gólfi í forstofuherbergi og hvíttað harð parket í öðrum herbergjum. Fataskápar eru í öllum herbergjum.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, hvít filmuð innrétting og hlaðin og flísalögð sturta. Tengi er fyrir þvottavél inn á baðherbergi.
Þvottahús/geymsla: Flísar eru á hluta af gólfi málning á hluta. Úr þvottahúsi er hurð til norðurs út á bílaplan.
Norðan við hús er stakstæður bílskúr sem búið er að skipta upp í þrjár geymslur, eina fyrir hverja íbúð í húsinu. Eignarhluti íbúðar er 19,1 m². Einn ofn er í geymslunni kynntur með affalli af íbúð. Búið er að drena með öllum hliðum bílskúrssins.
Annað:
- Tveir sérinngangar eru í íbúðina.
- Þakrennur hafa verið endurnýjaðar.
- Á árunum 2012-2014 voru frárennslislagnir sem og vatns- og rafmagnsinntak endurnýjað. Þá var einnig drenað kringum húsið, settar snjógildrur á þak, steyptar tröppur og verönd og bílaplan stækkað.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
























