HÚSASJÁ

Þórunnarstræti 106C

01-0101 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

85 m²

Stærð

1

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1948

Byggingarár

838 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Geymsla



141 dagar á sölu

sell

53.900.000 kr

631.887 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir til sölu tvær íbúðir í húsinu nr. 106C við Þórunnarstræti á Akureyri. Um er að ræða 38,0 fermetra studíóíbúð á 1. hæð og 39,2 fermetra studíóíbúð í kjallara og 8,1 fermetra í stigahúsi.  Birt stærð er samtals 85,3 fermetrar.

Þrjár íbúðir eru til sölu í húsinu. Eignin er vel staðsett í göngufæri við miðbæinn og stutt er í sundlaug Akureyrar.

Lýsing eignar:

Íbúð á 1.hæð/miðhæð - Gengið er í íbúðina frá austurhlið hússins:

Eldhús/stofa, í opnu rými. Gangur inn af þar sem er pláss fyrir ísskáp. Nýleg eikarlituð IKEA innrétting.

Svefnherbergi, með gluggum til vesturs og norðurs. Nýlegir fataskápar frá Tak innréttingum. Parket á gólfi.

Baðherbergi, endurnýjað fyrir nokkrum árum. Flísalagt í gólf og veggi. Innrétting, upphengt salerni og baðkar með glerþili. Gluggi er á baðherbergi. Hiti í gólfi.

Nýlegt fljótandi eikarparket er á gólfum íbúðarinnar.

Íbúð í kjallara:

Stofa/eldhús, með glugga til austurs. Nýleg innrétting.

Svefnherbergi, rúmgott og með glugga til austurs.

Baðherbergi, án glugga, endurnýjað með upphengdu salerni og nýlegum sturtuklefa. Hiti í gólfi.

Húsið hefur verið endurnýjað að miklu leyti á síðustu árum skv. upplýsingum frá seljanda eignarinnar:Nýjar inntakslagnir fyrir heitt og kalt vatn.Nýr brunnur í lóð og frárennslislagnir í lóð eru nýjar.Nýr ljósleiðari.Inntaksrör hafa verið lögð í bílskúr.Húsið var málað að utan og innan árið 2024.Þakrennur og niðurfallsrör yfirfarin og endurnýjuð árið 2024.Þakjárn var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er í lagi.Raflagnir og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta.Ný rafmagnstafla fyrir allar íbúðir + fyrir allt húsið (í sameign).Ný inntaksgrind fyrir vatn.Ný hitalögn í bílaplani.Búið er að jarðvegsskipta allt í kringum húsið og drena.Nýsteypt bílaplan og nýsteyptar gangstéttar.Nýjar svalir á efri hæð + ný handrið á efri og neðri svölum.

Eignin er skráð á einu fastanúmeri F215-1929. Íbúð í kjallara er skráð sem geymsla 01 0002 í eignaskiptayfirlýsingu.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

Kort af Þórunnarstræti 106C

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25