HÚSASJÁ

Þórunnarstræti 103

01-0101 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

126 m²

Stærð

4

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1949

Byggingarár

1037 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



18 dagar á sölu

sell

59.900.000 kr

476.153 kr/m²

Þórunnarstræti 103 - 101

Snyrtileg 4-5 herbergja hæð miðsvæðis á Akureyri. Eignin er samtals 125,8m2  með sérinngangi á austurhlið hússins. Einnig er sameigninlegur inngangur á norðurhlið hússins í kjallara.

Eignin skiptist í:

Forstofu, hol, tvö svefnherbergi ( auðvelt að breyta í þrjú, búið að taka vegg milli herbergja til að stækka), borðstofa ( Sem auðvelt er að breyta í herbergi), stofa eldhús, baðherbergi, geymsla og sameiginlegt þvottahús.

Forstofa  þar eru ljósar flísar á gólfi með hitalögn undir, fataskápur, úr forstofu er hurð í sameign í kajllara.

Hol er mjög rúmgott og gæti nýst sem sjónvarpsrými með parketi á gólfi.

Stofa og borðstofa með parketi á gólfi, mjög fallegum gluggum til tveggja átta hurð úr borðstofu út á svalir  til suðurs.   Sem væri auðvelt að breyta  í mjög rúmgott herbergi.

Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu með dökkri borðplötu, ljósar flísar á milli efri og neðri skápa einnig við glugga, harðparket á gólfi, pláss er fyrir eldhúsborð.

Svefnherbergi er mjög rúmgott með tveimur gluggum, harðparketi á gólfi, stórum hvítum fataskáp með skúffum og einnig er eining með skúffum.

Svefnherbergi sem er mjög rúmgott með þremur gluggum, plastparketi á gólfi og fataskáp. ( Veggur sem skipti þessu herbergi í tvö var tekinn, auðvelt að breyta til baka)

Baðherbergi er flísalagt gólf og veggir, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, innrétting sem er ljós/viður.  Opnanlegur gluggi.

Í kjallara sem er flísalagður er sameiginlegur inngangur, sérgeymsla og sameignlegt þvottahús.

Geymsluskúr á lóð er sameiginlegur fyrir allt húsið byggður árið 2020

Annað:

- Skolplagnir endurnýjaðar undir húsi og út í götu árið 2009

- Skorsteinn fjarlægður og þak lagað í kringum sárið árið 2025

- Gólfhiti í forstofu.

- Mjög skemmtileg staðsetning miðsvæðis á Akureyri.

- Eldhús hefur verið endurnýjað.

- Rafmagnstafla endurnýjuð.

- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir.

Viðhald á húsi:

1999: Einhverjar lóðaframkvæmdir, meðal annars drenlögn í kringum húsið að sögn eiganda

2009: Klóaklögn undir húsinu endurnýjuð

2025: Skorsteinn fjarlægður og þak lagað í kringum sárið

Kort af Þórunnarstræti 103

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu