Víðivellir 10
01-0101 · 600 Akureyri



16 dagar á sölu
66.900.000 kr
544.345 kr/m²
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Vel skipulögð 4ra herbergja parhúsaíbúð á einni hæð við Víðivelli á Eyrinni á Akureyri - samtals 122,9 m² að stærð.
Eignin skiptist í forstofur, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og geymsluloft.
Forstofa er tvöföld og þar eru flísar á gólfum.
Eldhúsið er með parketi á gólfi og málaðri eldri innréttingu. Þar eru uppþvottavél og ísskápur sem geta fylgt með við sölu.
Stofa er í viðbyggingu sem gengur suður úr húsinu og þar er parket á gólfum og útgangur á pall til vesturs.
Svefnherbergi er þrjú, öll með parket á gólfum og í tveimur þeirra eru gamlir innbyggðir fataskápar.
Baðherbergi er flísalagt og þar er baðkar með sturtutækjum og hengi. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Þvottahúsið er með flögutexi á gólfi og innaf þvottahúsinu er geymsla. Gluggi er bæði á þvottahúsi og geymslu. Geymsluloft er yfir að hluta og uppá það er farið úr forstofu.
Garðurinn er snyrtilegur. Bílastæði með möl í er við aðalinngang og sunnan við húsið og vestan við stofuna er góður sólpallur með skjólveggjum og grillhýsi.
Annað:
- Eignin er staðsett rétt við Oddeyrarskóla og í göngufæri við Miðbæinn og Glerártorg.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna















