HÚSASJÁ

Víðilundur 16

01-0305 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

95 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1970

Byggingarár

5080 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



1 dagar á sölu

sell

54.500.000 kr

576.110 kr/m²

Víðilundur 16, íbúð 305

Mikið endurnýjuð 3 herbergja, íbúð 94,6 fm. á 3 hæð (efstu)  á vinsælum stað með góðu útsýni.

Komið er inn á hol, þar er opið fatahengi með hillum. Harðparket á gólfi.

Eldhús er með svartri innréttingu, góðum borðkrók, innbyggðri uppþvottavél, spanhelluborði og ofni. Harðparket á gólfi.

Opið úr eldhúsi í stofu og þar út á svalir sem snúa til vesturs, fallegt útsýni til fjalla.

Stofa/borðstofa  björt og rúmgóð með parketi á gólfi.

Hol er framan við svefnherbergin og baðherbergið. Þar er harðparket á gólfi.

Hjónaherbergi er með stórum fataskáp. Harðparket á gólfi.

Barnaherbergi er með harðparekti á gólfi.

Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggir eru flísalagðir að hluta. Sturtubaðkar er með sturtutækjum, opið hengi, upphengt salerni og innrétting með skúffum.

Þvottahús er með flotuðu gólfi, opinni innréttingu, vaski, tengingum fyrir þvottavél og þurrkara.

Sér geymsla er í kjallara, nokkuð rúmgóð.

Einnig er sameiginleg hjólageymsla og bakdyrainngangur.

Annað:

-  Nýjir ofnar ásamt krönum 2018-2023.

-  Allt rafmagn endurnýjað 2018-2023.

-  Baðherbergi allt endurnýjað 2020.

-  Þak endurnýjað 2019, heilklætt, nýr pappi, ný einangrun, nýtt járn og flasningar.

- Skipt hefur verið um gler í íbúðinni og opnalegum fögum skipt út ásamt svalahurð, var gert 2010.

-  Eignin er í einkasölu á FS fasteignir.

Kort af Víðilundur 16

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð