HÚSASJÁ

Vanabyggð 2B

02-0101 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

167 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1960

Byggingarár

3394 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



8 dagar á sölu

sell

83.900.000 kr

502.998 kr/m²

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Vanabyggð 2b -  5 herbergja raðhúsaíbúð, tvær hæðir og kjallari á góðum stað á Brekkunni - samtals 166,0 m² að stærð.

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:

Kjallari:  Þvottahús og forstofa, salerni, eitt herbergi og rými sem gæti nýst sem herbergi, vinnurými eða geymsla.

Neðri hæð: Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa.

Efri hæð: Þrjú herbergi, baðherbergi, hol/gangur og geymsla.

Forstofa er með gráum flísum á gólfi og opnu fatahengi.  Einnig er forstofa/inngangur í kjallara og þar er dúkur á gólfi.

Eldhús er með parketi á gólfi og svartmálaðri innréttingu með nýlegri bekkplötur og tækjum.  Málaðar flísar á milli bekkja. Úr eldhúsi er stigi niður í kjallara.

Stofa/borðstofa er með parketi á gólfi og úr stofu er útgangur í garð til suð-vesturs.

Herbergin í íbúðinni eru fimm auk fjölnotarýmis í kjallara hvar ekki er full lofthæð.  Herbergi og rými í kjallara eru án gólfefna, en herbergi á efri hæð eru með spónaparketi.

Úr hjónaherbergi er útgangur á svalir til suð-vesturs.

Baðherbergi á efri hæð var allt tekið í gegn fyrir nokkrum árum.  Dökk viðarinnrétting og sturtuklefi, upphengd wc og opnanlegur gluggi.  Í kjallara er lítil snyrting.

Þvottahúsið er í kjallara og þar er dúkur á gólfi og útangur til austurs.

Geymslupláss í íbúðinn er ágætt.  Í kjallara er geymsla undir stiga, innaf einu herbergjanna.  Einnig er geymsla á efri hæð og geymsluskúr á lóð.

Garðurinn er snyrtilegur.  Framan við húsið er malbikuð stétt sem liggur meðfram öllu raðhúsi og í henni er snjóbræðsla.  Sólpallur, garðskúr og grillhýsi/skýli er vestan við húsið og þar er lóðin afgirt.

Annað

- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.

- Útleigumöguleikar í kjallara.

- Þak var endurnýjað árið 2025

- Húsið var málað að utan 2020.

- Stétt fyrir framan hús var tekin upp endurnýjuð sem og skólplagnir frá húsi.  Þá voru einnig inntök endurnýjuð.

- Vel staðsett hús miðsvæðis í bænum.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Vanabyggð 2B

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð