HÚSASJÁ

Seljahlíð 9D

04-0101 · 603 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

86 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1976

Byggingarár

1663 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús



53 dagar á sölu

sell

59.000.000 kr

681.293 kr/m²

Kasa fasteignir 461-2010.

Seljahlíð 9. Góð 3. herbergja 86.6 fm. raðhúsaíbúð á góðum stað í Glerárhverfi. Íbúðin er laus til afhendingar.

Íbúðin skiptist í: Forstofu, hol, stofu, eldhús, búr/geymsla inn af eldhúsi, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymsla. Gott geymsluloft er yfir íbúðinni.

Forstofa: Þar eru flísar á gólfum og þar er fatahengi.

Gangur/hol: Þar er parket á gólfum.

Stofa: Er nokkuð rúmgóð með parketi á gólfum, gengið er út á lóð út frá stofu.

Eldhús: Þar er eldri innrétting með flísum á milli skápa,  parket á gólfum.

Búr/geymsla er inn af eldhúsi þar er parket á gólfum.

Svefnherbergi: Hjónaherbergi er rúmgott með dúk á gólfum og fataskáp. Hitt svefnherbergið er með dúk á gólfum og skáp.

Þvottahús: þar er lakkað gólf.

Geymsla: Þar er lakkað gólf og hillur eru í geymslu, op er upp á geymsluloft frá geymslunni.

- Íbúðin er laus til afhendingar.

- Góð staðsetning miðsvæðis í Glerárhverfi.

- Stutt í skóla og íþróttasvæði.

- Nýtt þak er á húsinu.

- Mála þarf íbúðina utandyra.

- Nýr baðhergisgluggi fylgir en á eftir að setja hann í.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Seljahlíð 9D

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26