HÚSASJÁ

Munkaþverárstræti 33

01-0001 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

90 m²

Stærð

1

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1948

Byggingarár

649 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús



334 dagar á sölu

sell

49.700.000 kr

549.779 kr/m²

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Munkaþverárstræti 33 neðri hæð.

Laus til afhendingar fljótlega / við samningsgerð

Um er að ræða þriggja herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum á neðri hæð í tvíbýlishúsi, gengið er um eignina norðan við hús. Bílastæði með snjóbræðslu og einnig er hiti í stétt frá bílastæði og að inngangi.

Eignin er til afhendingar um miðjan nóvember 2025

Eignin skiptist í anddyri, gang, baðherbergi, svefnherbergi með smá geymslu innaf, eldhús og stofu í opnu rými, rúmgott svefnherbergi með fataherbergi og baðherbergi. Úr íbúðinni er einnig farið inn í rúmgóða geymslu þar innaf er farið inn í sameiginlegt rými með útgengi út á lóð til vesturs. Þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara fyrir íbúðina.

Anddyri norðan við hús um sameiginlegan inngang og þaðan beint inn í íbúðina. Útidyrahurðin/anddyrið telst til sameignar skv. eignaskiptasamningi en er í raun bakdyrainngangur fyrir efri hæðina en aðaldyr fyrir neðri hæðina.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengt wc og sturta með glerskilrúmi og opnanlegum glugga.

Svefnherbergin eru tvö, eitt þeirra á gangi við inngang, þar er paket á gólfi. Innaf því herbergi er lítil geymsla undir stiga efri hæðar. Hitt herbergið er mjög rúmgott með parket á gólfi, innaf herberginu er fataherbergi og rúmgott baðherbergi.

Baðherbergi sem er innaf svefnherberginu er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengt wc, speglaskápur, sturta með glerskilrúmi og opnanlegur gluggi.

Eldhús og stofa í opnu rými með parket á gólfi, eldhúsinnrétting í L með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.

Af gangi er farið inn í rúmgóða geymslu og þar innaf er farið inn í sameiginlegt rými/þvottahús þar sem íbúðin er með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er einnig útgengi út á verönd og er það inngangur efri hæðar inn í þetta sameignlega rými.

Loftræsting á báðum baðherbergjum og þvottahúsi.

Lóðin frá tröppum til að fara inn á hæðina, suður- og vestur fyrir hús tilheyrir efri hæðinni þó hefur neðri hæðin umgengisrétt að útidyrum að sameignarrýminu að vestan.

Annað:

- Stutt í miðbæ Akureyrar, sundlaugina og Glerártorg.

- Bílastæði

- Leyfi til skammtímaleigu er til staðar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955

Kort af Munkaþverárstræti 33

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33