Keilusíða 8
02-0302 · 603 Akureyri



9 dagar á sölu
43.500.000 kr
630.435 kr/m²
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Keilusíða 8 íbúð 302 - Skemmtileg og rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi í Síðuhverfi - stærð 69,0 m²
Eignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Einnig fylgir íbúðinni sér geymsla í kjallara.
Forstofa/hol eru með harðparketi á gólfi og opnu hengi.
Eldhús, hvít filmuð innrétting með flísum á milli skápa. Harðparket er á gólfi.
Stofa er ágætlega rúmgóð, með harðparketi á gólfi, stórum vestur gluggum og hurð út á vestur svalir.
Svefnherbergið er með harðparketi á gólfi og fataskáp með rennihurðum.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, hvít innrétting, upphengt wc, handklæðaofn og baðkar með sturtutækjum.
Þvottahús/geymsla er með lökkuðu gólfi, bekk með vask og hillum.
Sér geymsla er í kjallaranum skráð 7,5 m² að stærð
Annað
- Búið er að endurnýja alla glugga í íbúðinni.
- Mynddyrasími
- Nýtt harðparket var lagt á íbúðina árið 2024 og á sama tíma var innrétting á baðherbergi endurnýjuð.
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna















