HÚSASJÁ

Hafnarstræti 33

01-0101 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

117 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1903

Byggingarár

231 m²

Lóð

Garður

Friðað

Geymsla



23 dagar á sölu

sell

58.900.000 kr

503.849 kr/m²

Glæsileg, hlýleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja sérhæð í fallegu tvíbýli í innbænum á Akureyri. Tvær sérgeymslur í kjallara og útigeymsla undir tröppum. Samtals er eignin 116.9 fm.

Nánari lýsing:

Stofa, borðstofa og eldhús eru í sameiginlegu rými. Parket á gólfum. Úr borðstofu er gengið út á góða skjólgóða 20fm timburverönd. Eldhús er með nýlegri innréttingu frá Ikea, eyja er með góðu vinnuplássi. Tengi er fyrir þvottavél í innréttingu.

Forstofa. Er með vínilflísum og klæðningu á veggjum, gólf nýlega endurnýjað og einangrað. Nýlegur ofn, fataskápur við forstofudyr getur fylgt.

Herbergi eru með parketi á gólfi og í öðru herberginu er opinn fataskápur.

Baðherbergi er með flísum á gólfi. Fibo Trespo plötur á veggjum, walk in sturta, upphengt wc og nýlegur ofn.

Kjallararými notað til geymslu og sem vinnusvæði.

Geymsla undir tröppum.

Stigaskúr er baka til. Þar var áður inngangur í íbúð en þjónar ekki þeim tilgangi í dag fyrir neðri hæð sem þar á 46.77%.

Endurbætur og viðhald:

-íbúðin er mikið endurnýjuð frá 2021 til dagsins í dag.

-gler og gluggar endurnýjað í upprunalegum stíl

-innihurðir endurnýjaðar, svalahurð, útidyrahurð og kjallarahurð

-allir útveggir einangraðir og klæddir að innan með spónaplötum og að stórum hluta með veggjaklæðningu.

-útidyratröppur og geymsla undir tröppum endurnýjuð

-baðherbergi endurnýjað

-þakið var endurnýjað 2005

-vatnslagnir og raflagnir, ofnar og ofnalagnir endurnýjað 1991 ásamt rafmagnstöflu

-húsið drenað 2021

-endurnýjun íbúðar í samræmi við aldur og stíl hússins

Ástand stigaskúrs efri hæðar er mjög slæmt. Það er ósk eiganda efri hæðar að fara í framkvæmdir en þær hafa ekki verið samþykktar hvorki af Akureyrarbæ né eiganda neðri hæðar.

Allar upplýsingar um eignina gefa Sigfús Aðalsteinsson lgf. s, 8989979 eða Kristbjörn Sigurðsson lgf s 6923000 eða ks@midbaer.is

Kort af Hafnarstræti 33

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð