HÚSASJÁ

Hafnarstræti 23

01-0201 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

100 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1903

Byggingarár

931 m²

Lóð

Garður

Svalir

Friðað

Geymsla

Þvottahús



237 dagar á sölu

sell

49.800.000 kr

500.503 kr/m²

Hafnarstræti 23 - Mikið endurnýjuð 4ra herbergja risíbúð í fjölbýlishúsi í Innbænum á Akureyri - stærð 99,5 m²

Eignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Þrjár geymslur eru undir súð og svo er sér geymsla á jarðhæð.

Gengið er inn um sameiginlegan inngang á vesturhlið hússins og upp teppalagðan timbur stiga. Af stigapalli er annarsvegar hurð inn í forstofu/hol og hinsvegar svefnherbergi.

Forstofa/hol er með timbur gólffjölum og þar er lúga upp á loft.

Eldhús er með harðparketi á gólfi og ljósri sprautulakkaðri innréttingu og góðum borðkrók. Lítil geymsla er til hliðar úr eldhúsi undir súð.

Stofa er afar björt með timbur gólffjölum og tveimur gluggum til austurs.

Svefnherbergi eru þrjú:

Herbergi 1 er með tveimur stórum gluggum og góðum fataskáp. á gólfi eru timbufjalir.

Herbergi 2 er með fataskáp og timburfjölum á gólfi.

Herbergi 3 er með fataskáp, harðparketi á gólfi en úr því er hurð út á stigapall sem og útgengt á rúmgóðar suðursvalir (16,5 m²).

Baðherbergi er með flísaplötum á gólfi, hvítri innréttingu, upphengdu wc, stóru baðkari, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegum glugga. Lítil geymsla er til hliðar úr baðherbergi, undir súð.

Sér geymsla er á jarðhæðinni, skráð 10,3 m² að stærð, þar er steypt og lakkað gólf og gluggi. Nýlega voru settar upp hillueiningar.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin ár

Innanhús:

- Timburgólf verið pússuð og lökkuð á smekklegan máta.

- Skipt um allar ofnalagnir og ofnaloka.

- Nýtt harðparket lagt á tvö rými.

- Allir veggir lagaðir, þ.e pússaðir, spartlaðir og málaðir.

- Eldhúsinnrétting tekin í gegn, ný borðplata og höldur.

- Nýir fataskápar

- Skipt hefur verið um gólflista í allri íbúðinni.

Utanhús:

- Þak hefur verið endurnýjað.

- Farið hefur yfir klæðningu á húsi, viðarklæðningu, steypu og bárujárn og gert við sem og gluggar málaðir.

- Lóð hefur að miklu leyti verið endurnýjuð, sáð fyrir nýju grasi og mikil hreinsunarvinna hefur farið fram.

- Skipt um handrið á svölum og svalargólf málað.

Annað:

- Sláttuvél og sláttuorf í eigu húsfélags

- Íbúðin á fjórðungs hlut í þvottahúsi á jarðhæðinni á móti íbúðum á miðhæðinni og íbúð í suðurenda á jarðhæðinni

- Eignarhlutur í íbúðar í húseigninni er 25%

- Eignarhlutur hverrar íbúðar í lóð er sá sami og eignarhlutur í húsi.

- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Hafnarstræti 23

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð