HÚSASJÁ

Grænagata 6

01-0202 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

129 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1947

Byggingarár

857 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



24 dagar á sölu

sell

65.900.000 kr

511.249 kr/m²

Fasteignasalan Hvammur  -  466 1600

Grænagata 6 íbúð 202 - Skemmtileg 6 herbergja íbúð með sér inngangi, hæð og ris í fjölbýlishúsi á Eyrinni - stærð 128,9 m²

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti;

Hæð: forstofa, eldhús, tvær samliggjandi stofur, baðherbergi og svefnherbergi.

Rishæð: gangur, þrjú svefnherbergi, tvær geymslur og snyrting.

Kjallari: sameiginlegt þvottahús og bakinngangur og sér geymsla.

Forstofa er með flísum á gólfi og á stiga upp á aðalhæðina. Á stigapalli á aðalhæðinni er stór fataskápur og hurð út á steyptar austur svalir.

Eldhús var endurnýjað árið 2023. Þar er hvít innrétting úr IKEA með viðarbekkplötu og þiljur á milli skápa. Tveir ofnar í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél sem fylgir með við sölu eignar. Góður borðkrókur.

Tvær samliggjandi stofur eru á hæðinni með harðparketi á gólfi. Rúmgott rými þar sem auðvelt er að breyta annarri stofunni í svefnherbergi.

Svefnherbergin eru í dag fjögur, eitt herbergi er á aðalhæðinni og þrjú í risinu. Herbergi á neðri hæð er með harðparketi á gólfi en herbergi á efri hæð eru með dúk. Auðvelt að útbúa fimmta svefnherbergið með því að skipta stofunum upp.

Baðherbergi er með flísum á gólfi, upphengdu wc, ljósri innréttingu og eldri sturtuklefa.

Snyrting er í risi og þar er wc og lítil hvít innrétting.

Þrjár geymslur fylgja íbúðinni, tvær eru innan íbúðar í risinu undir súð og þriðja geymslan er í kjallaranum, skráð 4,4, m² að stærð. Einnig eru smá geymslurými inní svefnherbergjunum í risinu undir súð.

Sameiginlegt þvottahús er í kjallaranum og sameiginlegur bakinngangur.

Annað

- Þak var yfirfarið á árunum 2024-25. Nýr pappi, nýtt járn o.fl. Verktaki Fixa ehf.

- Gluggar í íbúðinni hafa verið endurnýjaðir.

- Forstofuhurð var endurnýjuð árið 2025.

- Búið er að taka inn ljósleiðara.

- Sér mælir fyrir hita og rafmagn.

- Vel staðsett eign, stutt í leik- og grunnskóla og helstu þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Grænagata 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu